﻿1
00:00:04,000 --> 00:00:07,000
Þetta er ESOcast!

2
00:00:07,000 --> 00:00:14,000
Vísindi í fremstu röð og lífið á bak við tjöldin hjá ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

3
00:00:26,000 --> 00:00:30,000
2,2 metra MPG/ESO sjónaukinn er í La Silla stjörnustöðinni í Chile.

4
00:00:31,000 --> 00:00:35,000
ESO hefur haft hann að láni frá Max Planck félaginu síðan 1984.

5
00:00:36,000 --> 00:00:39,000
Eftir 30 ára notkun mun ESO ekki lengur bjóða notendum sínum sjónaukann.

6
00:00:40,000 --> 00:00:43,000
En engar áhyggjur: Max Planck félagið heldur áfram að nota hann.

7
00:00:44,000 --> 00:00:47,000
2,2 metra sjónaukinn hefur tekið ótal glæsilegra ljósmynda.

8
00:00:48,000 --> 00:00:51,000
Hér eru nokkrar af okkar uppáhalds!

9
00:00:53,000 --> 00:00:57,000
Tunglið séð með 2,2 metra sjónaukanum.

10
00:00:58,000 --> 00:01:01,000
Nær-innrauð sía var notuð.

11
00:01:03,000 --> 00:01:07,000
Nálæg vetrarbraut, svipuð Vetrarbrautinni okkar.

12
00:01:08,000 --> 00:01:11,000
Hún er næstum á rönd svo þyrilarmar eru vart sjáanlegir.

13
00:01:13,000 --> 00:01:16,000
Þúsundir stjarna í fleti Vetrarbrautarinnar.

14
00:01:17,000 --> 00:01:21,000
Nokkrar vetrarbrautir í bakgrunni sjást sem benda að miklum efnismassa í alheiminum.

15
00:01:23,000 --> 00:01:26,000
Gas- og rykský sem útfjólublá geislun frá heitum stjörnum

16
00:01:26,000 --> 00:01:32,000
í þyrpingunni NGC 6193 vinstra megin, er að tortíma.

17
00:01:33,000 --> 00:01:37,000
Djúpmynd af litlu svæði á himninum.

18
00:01:38,000 --> 00:01:42,000
Daufustu fyrirbærin næstum 100 milljón sinnum daufari en augað nemur.

19
00:01:44,000 --> 00:01:47,000
Þetta vetnisský í Stóra Magellansskýinu, nálægri vetrarbraut,

20
00:01:48,000 --> 00:01:52,000
er rauðglóandi vegna geislunar frá ungum stjörnum.

21
00:01:54,000 --> 00:01:57,000
Þessir björtu gaskekkir líkjast fótum köngulóar.

22
00:01:58,000 --> 00:02:02,000
Þeir liggja út frá miðjunni þar sem þyrping heitra stjarna lýsir upp gasið í kring.

23
00:02:04,000 --> 00:02:06,000
Mjög virkt stjörnumyndunarsvæði,

24
00:02:07,000 --> 00:02:10,000
þar myndast stöðugt nýjar stjörnur úr stórum gas- og rykskýjum.

25
00:02:11,000 --> 00:02:14,000
Þessar skæru, ungu stjörnu eru nokkurra milljón ára gamlar.

26
00:02:15,000 --> 00:02:19,000
Þessi mynd sýnir flókin mynstur í þessari mögnuðu geimþoku.

27
00:02:20,000 --> 00:02:24,000
Þetta er risavaxin stjörnuverksmiðja, stærsta ljósmþokan í Grenndarhópnum.

28
00:02:26,000 --> 00:02:29,000
Þessi tvífari Vetrarbrautarinnar

29
00:02:29,000 --> 00:02:33,000
skín með ljósi milljarða stjarna og rúbínrauðum bjarma vetnisgass.

30
00:02:35,000 --> 00:02:39,000
Milljónir fjarlægra vetrarbrauta sjást á þessari djúpmynd,

31
00:02:40,000 --> 00:02:44,000
sumar svo fjarlægar að ljósið hefur ferðast í 12 milljarða ára til okkar.

32
00:02:46,000 --> 00:02:49,000
Þessi stjörnuþyrping er álíka stór og fullt tungl á himinhvolfinu.

33
00:02:50,000 --> 00:02:54,000
Hún er í um 17.000 ljósára fjarlægð frá okkur í stjörnumerkinu Mannfáknum.

34
00:02:56,000 --> 00:02:59,000
Gasský sem er rauðglóandi vegna útfjólublárrar geislunar frá stjörnum sem eru heitari,

35
00:03:00,000 --> 00:03:04,000
yngri og miklu massameiri en sólin okkar.

36
00:03:06,000 --> 00:03:08,000
13 milljón ljósár í burtu, 70.000 ljósár í þvermál

37
00:03:08,000 --> 00:03:11,000
og hýsir margar stórar og rykugar stjörnuverksmiðjur.

38
00:03:12,000 --> 00:03:15,000
Í miðjunni virðist vera risasvarthol.

39
00:03:16,000 --> 00:03:19,000
Stjörnuhreiður þar sem ungar stjörnuþyrpingar móta stóra stólpa úr gasi og ryki.

40
00:03:20,000 --> 00:03:24,000
„Stólpar sköpunarinnar“ urðu frægir á mynd frá Hubble og eru í miðri þokunni.

41
00:03:27,000 --> 00:03:31,000
Þessi glæsilega hringþoka er úr gasskeljum sem fuku burt frá stjörnu.

42
00:03:32,000 --> 00:03:34,000
Aðalhringurinn er tvö ljósár í þvermál,

43
00:03:34,000 --> 00:03:36,000
helmingurinn af fjarlægðinni milli sólar og næstu stjörnu.

44
00:03:37,000 --> 00:03:41,000
Þríklofnaþokan dregur nafn sitt af ryki sem klýfur glóandi hjarta hennar.

45
00:03:42,000 --> 00:03:44,000
Sjaldgæf blanda þriggja geimþoka::

46
00:03:44,000 --> 00:03:46,000
Ljóm-, endurskins- og skuggaþoku; uppfullar af nýmynduðum stjörnum.

47
00:03:48,000 --> 00:03:51,000
Þokan er áttfalt stærri á himninum en fullt tungl.

48
00:03:52,000 --> 00:03:55,000
Risavaxið miðgeimsský þar sem stjörnur myndast.

49
00:03:58,000 --> 00:04:02,000
Bjartasta stjörnumyndunarsvæðið í nágrannavetrarbrautinni Litla Magellansskýinu,

50
00:04:03,000 --> 00:04:06,000
sem er í um 210.000 ljósára fjarlægð frá Jörðinni.

51
00:04:08,000 --> 00:04:12,000
Stjarnan R Coronae Australis er á þessu svæði

52
00:04:12,000 --> 00:04:15,000
blárrar endurskinsþoku og rykskýja.

53
00:04:18,000 --> 00:04:21,000
50 klukkustunda ljósmynd sýnir byggingu

54
00:04:21,000 --> 00:04:24,000
þyrilvetrarbrautar í miklum smáatriðum.

55
00:04:28,000 --> 00:04:31,000
Virkt stjörnumyndunarsvæði og dökkar, kaldar rykslæður sem skyggja

56
00:04:31,000 --> 00:04:35,000
á glóandi gasþoku sem umlykur margar stjörnuþyrpingar.

57
00:04:38,000 --> 00:04:41,000
Þetta skakka útlit vetrarbrautarinnar er talið stafa af

58
00:04:41,000 --> 00:04:45,000
þyngdartogi annarrar vetrarbrautar einhvern tímann í sögu hennar.

59
00:04:49,000 --> 00:04:52,000
Ský úr gasi og nýmynduðum stjörnum í um 6.500 ljósára fjarlægð.

60
00:04:53,000 --> 00:04:57,000
Sérðu hlaupandi kjúklinginn?

61
00:04:59,000 --> 00:05:02,000
Mjög virkt stjörnumyndunarsvæði í kringum Tarantúluþokuna.

62
00:05:03,000 --> 00:05:07,000
Stjörnurnar sýnast gulrauðar vegna ryks.

63
00:05:09,000 --> 00:05:12,000
Ein nálægasta þyrilvetrarbrautin á suðurhimni.

64
00:05:13,000 --> 00:05:15,000
Ótal stjörnur og bleikglóandi vetnisský sjást

65
00:05:15,000 --> 00:05:19,000
í slitróttum þyrilörmunum.

66
00:05:20,000 --> 00:05:23,000
Gott dæmi um endurskinsþoku,

67
00:05:24,000 --> 00:05:27,000
bláa ljósið kemur frá heitri stjörnu sem rykagnir dreifa.

68
00:05:30,000 --> 00:05:33,000
Eitt auðþekkjanlegasta og mest rannsakaða fyrirbæri himins.

69
00:05:34,000 --> 00:05:37,000
Í þessu stóra gas- og rykskýi eru massamiklar stjörnur að myndast

70
00:05:37,000 --> 00:05:39,000
á nálægasta slíka svæðinu við Jörðina.

71
00:05:40,000 --> 00:05:44,000
Sporvöluvetrarbraut með breiða og flekkótta slæðu sem hylur miðjuna.

72
00:05:45,000 --> 00:05:48,000
Dökka slæðan geymir gasi, ryk og ungar stjörnur.

73
00:05:51,000 --> 00:05:53,000
Sterk útfjólublá geislun frá heitum, ungum stjörnum

74
00:05:53,000 --> 00:05:56,000
veldur því gasskýið glóir og myndar holrúm

75
00:05:56,000 --> 00:05:59,000
í gasinu og rykinu.

76
00:06:01,000 --> 00:06:04,000
Pípuþokan er dæmi um skuggaþoku,

77
00:06:05,000 --> 00:06:09,000
ský úr þykku ryki svo ljós fyrir aftan berst ekki í gegn.

78
00:06:11,000 --> 00:06:14,000
Eitt virkasta stjörnumyndunarsvæðið í Vetrarbrautinni.

79
00:06:15,000 --> 00:06:19,000
Margar stórar, ungar, bláar stjörnur sem urðu til á síðustu milljónum ára.

80
00:06:21,000 --> 00:06:24,000
Þetta sérkennilega gasský er hluti af stórum hring sem

81
00:06:24,000 --> 00:06:28,000
myndaðist í sprengistjörnu fyrir um 11.000 árum.

82
00:06:32,000 --> 00:06:35,000
Stjörnumyndunarsvæði sem kallast Mávaþokan.

83
00:06:36,000 --> 00:06:40,000
Skær ung stjarna — HD 53367 — lýsir að mestu upp skýið.

84
00:06:42,000 --> 00:06:45,000
Skuggaþoka þar sem nýjar stjörnur eru að myndast og þyrpingu stjarna

85
00:06:45,000 --> 00:06:49,000
sem þegar hafa yfirgefið stjörnuhreiðrið sitt.

86
00:06:51,000 --> 00:06:54,000
Skrítið par. Hópur ungra, blárra stjarna og skuggaþoka úr ryki.

87
00:06:55,000 --> 00:06:57,000
Í bakgrunni sjást

88
00:06:58,000 --> 00:07:01,000
milljónir stjarna í bjartasta hluta Vetrarbrautarinnar.

89
00:07:03,000 --> 00:07:08,000
Þyrping mjög ungra stjarna í stjörnumerkinu Seglinu.

90
00:07:13,000 --> 00:07:16,000
Stór kúluþyrping úr gömlum stjörnum

91
00:07:16,000 --> 00:07:20,000
í stjörnumerkinu Páfuglinum.

92
00:07:41,000 --> 00:07:45,000
Handrit: ESO; þýðing: Sævar Helgi Bragason

