﻿1
00:00:02,000 --> 00:00:04,000
Risavaxinn

2
00:00:05,000 --> 00:00:07,000
Þungur

3
00:00:08,000 --> 00:00:10,000
Hárnákvæmur

4
00:00:10,000 --> 00:00:13,000
Ótrúlega hreyfanlegur

5
00:00:13,000 --> 00:00:16,000
Mjög harðger

6
00:00:17,000 --> 00:00:22,000
Í hvert sinn sem flutningabílar ALMA flytja viðkvæm hátækniloftnetin

7
00:00:23,000 --> 00:00:25,000
er mikið í húfi.

8
00:00:25,000 --> 00:00:29,000
Vinnan er krefjandi, bæði fyrir mann og vélar.

9
00:00:30,000 --> 00:00:34,000
Hinir tveir risavöxnu flutningabílar ALMA, nefndir Otto og Lore,

10
00:00:35,000 --> 00:00:40,000
aka löturhægt yfir stórbrotið landslag Atacamaeyðimerkurinnar í Chile

11
00:00:40,000 --> 00:00:46,000
og flytja næm loftnetin með geysimikilli nákvæmni.

12
00:00:47,000 --> 00:00:52,000
Að geta fært loftnetin til er mikilvægur hluti

13
00:00:52,000 --> 00:00:56,000
af starfsemi hinnar öflugu ALMA sjónaukaraðar.

14
00:00:58,000 --> 00:01:01,000
Þetta er ESOcast!

15
00:01:01,000 --> 00:01:05,000
Vísindi í fremstu röð og lífið á bak við tjöldin hjá ESO,

16
00:01:05,000 --> 00:01:08,000
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

17
00:01:08,000 --> 00:01:14,000
Könnun á undrum alheimsins með þáttastjórnandanum Dr. J, einnig þekktur sem Dr. Joe Liske.

18
00:01:16,000 --> 00:01:20,000
ALMA — Atacama Large Millimeter/submillimeter Array —

19
00:01:20,000 --> 00:01:25,000
er öflugasti sjónauki heims til að rannsaka hinn kalda alheim.

20
00:01:25,000 --> 00:01:29,000
Sjónaukinn samanstendur af 66 hárnákvæmum loftnetum

21
00:01:29,000 --> 00:01:32,000
sem hægt er að staðsetja allt að 16 km í sundur.

22
00:01:32,000 --> 00:01:35,000
Að geta fært og flutt til

23
00:01:35,000 --> 00:01:38,000
hvert loftnet fyrir sig

24
00:01:38,000 --> 00:01:41,000
er einmitt ein af ástæðum þess að ALMA

25
00:01:41,000 --> 00:01:44,000
er jafn öflugt vísindatæki og raun ber vitni.

26
00:01:44,000 --> 00:01:47,000
En að flytja til loftnetin krefst háþróaðs

27
00:01:47,000 --> 00:01:50,000
farartækis sem varð að sérsmíða fyrir verkið.

28
00:01:53,000 --> 00:01:57,000
ALMA flutningabíllinn er verkfræðilegt undur.

29
00:01:57,000 --> 00:02:02,000
20 metra langur, 10 metra breiður og 6 metra hár.

30
00:02:02,000 --> 00:02:05,000
Hann hefur 28 dekkjapör

31
00:02:05,000 --> 00:02:09,000
sem hægt er að snúa sjálfstætt í hvaða átt sem er

32
00:02:10,000 --> 00:02:14,000
og veitir ótrúlegan hreyfanleika.

33
00:02:14,000 --> 00:02:21,000
Þessi risi vegur 130 tonn og er knúinn áfram af

34
00:02:21,000 --> 00:02:27,000
tveimur 700 hestafla vélum sem ná allt að 20 km hraða á klukkustund

35
00:02:27,000 --> 00:02:30,000
eða 12 km/klst þegar hann flytur loftnet.

36
00:02:34,000 --> 00:02:38,000
Bílstjórnarklefinn er lágt niðri til að tryggja að ökumaðurinn hafi óheft útsýni.

37
00:02:38,000 --> 00:02:42,000
Einnig er hægt að fjarstýra bílnum

38
00:02:42,000 --> 00:02:47,000
en það gerir ökumanninum kleift að standa fyrir utan bílinn og fylgjast með vélinni.

39
00:02:47,000 --> 00:02:50,000
á meðan varasömum tilfærslum stendur.

40
00:02:53,000 --> 00:02:56,000
Tilgangur ALMA flutningabílanna er að færa loftnetin til

41
00:02:56,000 --> 00:02:59,000
og staðsetja þau með nákvæmni upp á millímetra.

42
00:02:59,000 --> 00:03:03,000
Það er alls ekki slæmt miðað við að hvert loftnet

43
00:03:03,000 --> 00:03:07,000
vegur ríflega 100 tonn.

44
00:03:07,000 --> 00:03:10,000
Ferðalag loftnetanna getur verið frá allt að nokkur hundruð metrum,

45
00:03:10,000 --> 00:03:13,000
frá einum loftnetspalli til næsta,

46
00:03:13,000 --> 00:03:16,000
upp í allt að 28 kílómetra frá grunnbúðunum og upp á

47
00:03:16,000 --> 00:03:20,000
Chajnantor hásléttuna í 5.000 metra hæð yfir sjávarmáli.

48
00:03:25,000 --> 00:03:28,000
Öflugar vélar Ottos eru ræstar.

49
00:03:28,000 --> 00:03:31,000
Allir fyrirhugaðir loftnetsflutningar

50
00:03:31,000 --> 00:03:34,000
krefjast óskiptrar athygli flutningshópsins.

51
00:03:34,000 --> 00:03:41,000
Að flytja til risavöxnu ALMA loftnetin kemst aldrei í vana

52
00:03:41,000 --> 00:03:46,000
því minnstu mistök geta reynst mjög dýrkeypt.

53
00:03:49,000 --> 00:03:54,000
U-laga rammi flutningabílsins dreifir byrðunum jafnt.

54
00:03:54,000 --> 00:03:59,000
Hægt og rólega er flutningabílnum komið vel og vandlega fyrir

55
00:03:59,000 --> 00:04:02,000
og loftnetin eru búin undir ferðalgið.

56
00:04:10,000 --> 00:04:16,000
Tveir skáhallandi teinar halda loftnetinu stöðugu þegar því er lyft upp á flutningabílinn.

57
00:04:20,000 --> 00:04:24,000
ALMA flutningabílinn heldur loftnetinu

58
00:04:24,000 --> 00:04:27,000
algerlega pikkföstu.

59
00:04:40,000 --> 00:04:44,000
Loftnetinu er síðan komið fyrir með ótrúlegri nákvæmni á nýja staðnum.

60
00:04:44,000 --> 00:04:49,000
En að flytja loftnetið frá grunnbúðunum upp á

61
00:04:49,000 --> 00:04:52,000
Chajnantor hásléttuna er gerólíkt viðfangsefni.

62
00:04:52,000 --> 00:04:55,000
Ferðalagið er 28 kílómetra löng leið upp fjallið

63
00:04:55,000 --> 00:05:00,000
og nemur hækkunin 2.100 metrum.

64
00:05:05,000 --> 00:05:10,000
Langferðin upp bugðóttann veginn er prófraun fyrir bæði ökumanninn og vélina

65
00:05:10,000 --> 00:05:14,000
og spennan innan hópsins er mikil.

66
00:05:14,000 --> 00:05:19,000
Flutningabíllinn skríður á 12 km hraða á klukkustund

67
00:05:19,000 --> 00:05:22,000
upp veginn.

68
00:05:22,000 --> 00:05:26,000
Hann er útbúinn einstöku fjöðrunarkerfi sem ræður vel við

69
00:05:26,000 --> 00:05:29,000
þvottabrettið á veginum

70
00:05:29,000 --> 00:05:32,000
og heldur viðkvæmum farminum öruggum á öllum stundum.

71
00:05:35,000 --> 00:05:40,000
Í svo mikilli hæð er ökuferðin engin skemmtiferð: Þegar loftið þynnist

72
00:05:40,000 --> 00:05:46,000
eiga starfsmenn erfitt með andardrátt og þurfa að nota súrefnistanka.

73
00:05:46,000 --> 00:05:52,000
Að sama skapi minnkar aflið sem vélar bílsins framleiða töluvert.

74
00:05:52,000 --> 00:05:57,000
Að lokum er komið upp á sléttuna og loftnetið látið síga

75
00:05:57,000 --> 00:06:00,000
með mikilli nákvæmni á pallinn

76
00:06:00,000 --> 00:06:05,000
til að auka getu ALMA.

77
00:06:09,000 --> 00:06:12,000
Við fyrstu sýn gætu þessir flutningabílar virst vera

78
00:06:12,000 --> 00:06:15,000
lítið annað en fyrirferðamiklir og öflugir risatrukkar.

79
00:06:15,000 --> 00:06:17,000
En þeir eru svo miklu meira:.

80
00:06:18,000 --> 00:06:21,000
Geta þeirra til að höndla viðkvæm loftnet ALMA

81
00:06:21,000 --> 00:06:24,000
með jafn mikilli mýkt og nákvæmni gerir þá einfaldlega að

82
00:06:24,000 --> 00:06:27,000
ómissandi tækjum fyrir ALMA.

83
00:06:27,000 --> 00:06:30,000
Og það sem meira er, þá gera þeir það í harðneskjulegu umhverfi

84
00:06:30,000 --> 00:06:33,000
og með óbrigðulum áreiðanleika.

85
00:06:33,000 --> 00:06:37,000
Svo þessir risar eru ekki aðeins trukkar

86
00:06:37,000 --> 00:06:41,000
heldur eru þeir í raun hluti af sjónaukanum.

87
00:06:41,000 --> 00:06:44,000
Þetta er Dr. J sem kveður fyrir hönd ESOcast.

88
00:06:44,000 --> 00:06:47,000
Fylgstu með nýjum stjarnfræðilegum ævintýrum í næsta þætti.

89
00:06:49,000 --> 00:06:52,000
ESOcast er framleitt af ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli

90
00:06:52,000 --> 00:06:54,000
ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli, eru fremstu

91
00:06:54,000 --> 00:06:56,000
fjölþjóðlegu stjarnvísindasamtök heims

92
00:06:56,000 --> 00:07:00,000
sem hannar, smíðar og starfrækir öflugustu stjörnusjónauka heims.

93
00:07:00,000 --> 00:07:02,000
Atacama Large Millimeter/submillimeter Array er fjölþjóðleg stjörnustöð

94
00:07:02,000 --> 00:07:04,000
og samstarfsverkefni Evrópu, Norður Ameríku og austur Asíu í samvinnu við Chile.

95
00:07:04,000 --> 00:07:10,000
Handrit: ESO; þýðing: Sævar Helgi Bragason

