﻿1
00:00:02,000 --> 00:00:04,000
Á 50 ára afmælisdegi sínum,

2
00:00:05,000 --> 00:00:07,000
þann 5. október 2012,

3
00:00:08,000 --> 00:00:11,000
stóð ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli

4
00:00:11,000 --> 00:00:16,000
fyrir beinni vefútsendingu sem kallaðist „Dagur í lífi ESO“.

5
00:00:16,000 --> 00:00:21,000
Með útsendingunni gafst áhorfendum einstakt tækifæri til að skoða

6
00:00:21,000 --> 00:00:25,000
innviði öflugustu stjörnustöðvar heims

7
00:00:25,000 --> 00:00:32,000
og hjálpa til við að halda upp á fyrstu 50 árin í rannsóknum ESO á suðurhimninum.

8
00:00:34,000 --> 00:00:37,000
ESO var sett á laggirnar árið 1962 og er í dag

9
00:00:37,000 --> 00:00:43,000
fremstu fjölþjóðlegu vísinda- og tæknisamtök í stjörnufræði í heiminum

10
00:00:43,000 --> 00:00:48,000
og starfrækja þrár einstakar stjörnustöðvar á heimsmælikvarða í Chile,

11
00:00:48,000 --> 00:00:51,000
en höfuðstöðvarnar eru í Garching í Þýskalandi.

12
00:00:56,000 --> 00:00:58,000
Þetta er ESOcast!

13
00:00:58,000 --> 00:01:00,000
Vísindi í fremstu röð

14
00:01:00,000 --> 00:01:05,000
og lífið á bak við tjöldin hjá ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

15
00:01:17,000 --> 00:01:20,000
Það er morgun þann 5. október.

16
00:01:20,000 --> 00:01:24,000
Niðurtalning fyrir vefútsendinguna „Dagur í lífi ESO“

17
00:01:24,000 --> 00:01:28,000
er hafin og undirbúningur á fullu.

18
00:01:28,000 --> 00:01:35,000
Stutt er þar til bein útsending undir stjórn Dr. J., einnig þekktur sem Dr. Joe Liske

19
00:01:35,000 --> 00:01:37,000
hefst, sem gefur almenningi

20
00:01:37,000 --> 00:01:41,000
tækifæri til að eiga samskipti við stjörnufræðinga og verkfræðinga ESO

21
00:01:41,000 --> 00:01:45,000
með því að hlusta á erindi í beinni útsendingu og spyrja þá spurninga.

22
00:01:47,000 --> 00:01:51,000
Á sama tíma hinumegin á hnettinum

23
00:01:51,000 --> 00:01:53,000
hefur hin franska Brigitte Bailleul, vinningshafinn

24
00:01:53,000 --> 00:01:57,000
í „Tístaðu þig í heimsókn til VLT!“ keppninni,

25
00:01:57,000 --> 00:02:00,000
komið sér fyrir í Paranal stjörnustöðinni í Chile

26
00:02:00,000 --> 00:02:03,000
og býr sig undir að taka við verðlaununum sínum:

27
00:02:03,000 --> 00:02:06,000
Að gera mælingar í beinni útsendingu með heimsins

28
00:02:06,000 --> 00:02:10,000
öflugasta stjörnusjónauka fyrir sýnilegt ljós,

29
00:02:10,000 --> 00:02:14,000
Very Large Telescope eða VLT.

30
00:02:17,000 --> 00:02:20,000
Fyrr en varir er komin á tenging milli höfuðstöðva ESO

31
00:02:20,000 --> 00:02:24,000
í Garching í Þýskalandi og Brigitte í Paranal

32
00:02:24,000 --> 00:02:27,000
og mörg hundruð manns frá öllum heimshornum

33
00:02:27,000 --> 00:02:31,000
fylgjast með Brigitte gera mælingarnar.

34
00:02:32,000 --> 00:02:34,000
Hún er nú orðin sérfræðingur

35
00:02:34,000 --> 00:02:37,000
og mun hefja mælingarnar.

36
00:02:42,000 --> 00:02:47,000
Ok, nú höfum við sent skipanir um að hefja mælingarnar.

37
00:02:47,000 --> 00:02:51,000
Viðfangsefni VLT er Þórshjálmsþokan

38
00:02:51,000 --> 00:02:54,000
fyrirbæri sem almenningur kaus

39
00:02:54,000 --> 00:02:57,000
í „Veldu það sem VLT skoðar“ keppninni.

40
00:03:06,000 --> 00:03:07,000
Vá! Þetta er ótrúlegt!

41
00:03:08,000 --> 00:03:11,000
Þetta er það sem þú færð með 30 sekúndna

42
00:03:11,000 --> 00:03:13,000
lýsingartíma með VLT.

43
00:03:13,000 --> 00:03:14,000
Þetta er ótrúlegt!

44
00:03:14,000 --> 00:03:16,000
Ég átti ekki von á þessu.

45
00:03:17,000 --> 00:03:19,000
Hvað finnst þér?

46
00:03:19,000 --> 00:03:21,000
Þetta er frábært!

47
00:03:23,000 --> 00:03:27,000
Í Þýskalandi kynnir Dr. J nokkur erindi

48
00:03:27,000 --> 00:03:31,000
frá sérfræðingum ESO sem veita upplýsingar frá fyrstu hendi

49
00:03:31,000 --> 00:03:34,000
og innsýn í heim stjarnvísindarannsókna.

50
00:03:37,000 --> 00:03:40,000
Allt snýst um spurningar, við spyrjum spurninga

51
00:03:40,000 --> 00:03:43,000
vegna þess að við viljum vita, það er það sem við gerum, það sem við lifum fyrir.

52
00:03:43,000 --> 00:03:46,000
Og sér í lagi, það sem fannst hér

53
00:03:46,000 --> 00:03:48,000
var útgeislun einfalds sykurs

54
00:03:48,000 --> 00:03:52,000
en það er mikilvægt vegna þess að sykur er grunnkeðjan

55
00:03:52,000 --> 00:03:54,000
sem myndar orku fyrir líf

56
00:03:54,000 --> 00:03:58,000
og þessi einfaldi sykur fannst fyrst í mælingum ALMA.

57
00:03:58,000 --> 00:04:02,000
Með hátækninni höfum við öðlast betri sýn á náttúruna

58
00:04:02,000 --> 00:04:07,000
það er þar sem vísindamenn komast mjög nálægt

59
00:04:07,000 --> 00:04:10,000
náttúrunni, þannig geta þeir skilið náttúruna.

60
00:04:13,000 --> 00:04:15,000
Fyrir, á meðan og eftir hvert erindi,

61
00:04:15,000 --> 00:04:19,000
senda nokkur hundruð áhorfendur spurningar til fyrirlesarana

62
00:04:19,000 --> 00:04:24,000
í gegnum Facebook, Twitter, tölvupóst eða spjallkassann í útsendingunni sjálfri.

63
00:04:25,000 --> 00:04:28,000
Á hvaða tíma dags getur þú notað ALMA útvarpssjónaukana,

64
00:04:28,000 --> 00:04:30,000
bara á næturnar?

65
00:04:30,000 --> 00:04:33,000
Nei, við getum tæknilega séð notað ALMA allan sólarhringinn.

66
00:04:34,000 --> 00:04:39,000
Hefurðu einhverjar ráðleggingar fyrir ungt fólk sem er að fylgjast með og vilja verða stjörnufræðingar?

67
00:04:39,000 --> 00:04:41,000
Já!

68
00:04:41,000 --> 00:04:45,000
Mín ráðlegging er spurningar — spyrjið spurninga, alltaf!

69
00:04:45,000 --> 00:04:49,000
Eftir að við finnum merki um líf í lofthjúpi fjarreikistjörnu,

70
00:04:49,000 --> 00:04:51,000
hvert heldur þú að verði næsta skref?

71
00:04:51,000 --> 00:04:53,000
Hvað munum við gera næst?

72
00:04:54,000 --> 00:04:57,000
Ég held að eitt af næstu skrefunum sé ef til vill

73
00:04:57,000 --> 00:04:59,000
að leita að útvarpsmerkjum.

74
00:05:01,000 --> 00:05:06,000
Næstum 600 áhorfendur frá 55 löndum

75
00:05:06,000 --> 00:05:08,000
létu reyna á þekkingu sína á ESO

76
00:05:08,000 --> 00:05:11,000
í spurningakeppni sem fram fór allan daginn.

77
00:05:17,000 --> 00:05:20,000
Milli erinda voru sýndir

78
00:05:20,000 --> 00:05:26,000
kaflar úr afmælismynd ESO, „Evrópa til stjarnanna“.

79
00:05:26,000 --> 00:05:32,000
Þessi heimildarmynd segir frá sögu ESO með glæsilegum myndum.

80
00:05:38,000 --> 00:05:41,000
Í lok dagsins

81
00:05:41,000 --> 00:05:44,000
er aftur komið á beinni tengingu við Paranal stjörnustöðina.

82
00:05:45,000 --> 00:05:49,000
Á palli VLT stjörnustöðvarinnar

83
00:05:49,000 --> 00:05:53,000
á hinu 2.600 metra háa Cerro Paranal fjalli

84
00:05:53,000 --> 00:05:56,000
bíður hópur stjörnufræðinga ásamt óþreyjufullri Brigitte

85
00:05:56,000 --> 00:06:00,000
eftir að sjá niðurstöður mælinganna fyrr um daginn.

86
00:06:00,000 --> 00:06:02,000
Enginn verður fyrir vonbrigðum.

87
00:06:03,000 --> 00:06:07,000
VLT hefur náð glæsilegri

88
00:06:07,000 --> 00:06:10,000
ljósmynd af Þórshjálmsþokunni.

89
00:06:18,000 --> 00:06:21,000
Og þar með er tími til kominn fyrir Dr. J

90
00:06:21,000 --> 00:06:25,000
að kveðja og ljúka beinu útsendingunni:

91
00:06:25,000 --> 00:06:27,000
„Dagur í lífi ESO.“

92
00:06:29,000 --> 00:06:32,000
Fyrir Brigitte var þetta einstakt tækifæri

93
00:06:32,000 --> 00:06:36,000
og fyrir áhorfendurna, tækifæri til að deila reynslunni með henni.

94
00:06:37,000 --> 00:06:44,000
Er til betri leið til að halda upp á 50 frábær stjörnufræðiár hjá ESO?

95
00:06:50,000 --> 00:06:52,000
Handrit: ESO; Þýðing: Sævar Helgi Bragason

