﻿1
00:00:02,220 --> 00:00:04,240
Þetta er ESOcast!

2
00:00:04,240 --> 00:00:07,860
Vísindi í fremstu röð og lífið á bak við tjöldin hjá ESO,

3
00:00:07,860 --> 00:00:10,330
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli,

4
00:00:10,500 --> 00:00:17,810
könnun á undrum alheimsins með þáttarstjórnandanum Dr J, einnig þekktur sem Dr Joe Liske.

5
00:00:20,000 --> 00:00:23,120
Komið þið sæl og verið velkomin í þennan aukaþátt ESOcast.

6
00:00:23,500 --> 00:00:27,830
Í aðdragandi 50 ára afmælis ESO í október 2012

7
00:00:27,830 --> 00:00:30,560
munum við sýna átta aukaþætti

8
00:00:30,560 --> 00:00:35,620
um fyrstu 50 árin í rannsóknum ESO á suðurhimninum.

9
00:00:39,660 --> 00:00:44,600
Að smíða stórt

10
00:00:49,910 --> 00:00:52,820
Stjörnufræði er stór vísindagrein.

11
00:00:55,410 --> 00:00:57,170
Alheimurinn er risavaxinn

12
00:00:57,170 --> 00:01:01,610
og rannsóknir á honum krefjast stórra mælitækja.

13
00:01:06,350 --> 00:01:10,830
Þetta er 5 metra breiði Hale spegilsjónaukinn á Palomarfjalli.

14
00:01:10,830 --> 00:01:15,740
Þegar Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli var stofnuð fyrir fimmtíu árum

15
00:01:15,740 --> 00:01:19,190
var hann stærsti sjónauki í heiminum.

16
00:01:20,440 --> 00:01:26,000
Very Large Telescope ESO á Cerro Paranal er sá þróaðasti í dag.

17
00:01:26,500 --> 00:01:29,310
Hann er öflugasti sjónauki sögunnar

18
00:01:29,310 --> 00:01:33,690
og hefur sýnt okkur alheiminn í allri sinni dýrð.

19
00:01:36,330 --> 00:01:40,600
En stjörnufræðingar eygja enn stærri tæki.

20
00:01:40,600 --> 00:01:43,960
Og ESO lætur drauma þeirra rætast.

21
00:01:58,310 --> 00:02:00,630
San Pedro de Atacama.

22
00:02:02,000 --> 00:02:05,560
Á afviknum stað innan um glæsileg náttúruundur

23
00:02:05,560 --> 00:02:10,080
er þessi heillandi bær heimkynni innfæddra Atacameños

24
00:02:10,080 --> 00:02:12,630
en líka bakpokaferðalanga með ævintýraþrá.

25
00:02:14,890 --> 00:02:18,690
Og stjörnufræðinga og tæknimanna ESO.

26
00:02:24,000 --> 00:02:28,070
Skammt frá San Pedro er daumatæki ESO að taka á sig mynd.

27
00:02:28,070 --> 00:02:33,660
Tækið kallast ALMA – Atacama Large Millimeter/submillimeter Array.

28
00:02:34,740 --> 00:02:40,100
ALMA er samstarfsverkefni Evrópu, Norður Ameríku og austur Asíu.

29
00:02:40,100 --> 00:02:43,060
Hún virkar eins og risavaxin súmlinsa.

30
00:02:43,060 --> 00:02:48,340
Þegar loftnetin 66 eru þétt saman fæst víðmynd af himninum.

31
00:02:48,340 --> 00:02:54,240
En þegar þau eru færð sundur sýna þau miklu fínni smáatriði á smærra svæði á himninum.

32
00:02:56,370 --> 00:03:01,060
Á hálfsmillímetra-bylgjulengdum sér ALMA alheiminn í öðru ljósi.

33
00:03:01,060 --> 00:03:02,720
En hvað mun hann leiða í ljós?

34
00:03:04,260 --> 00:03:09,740
Myndun fyrstu vetrarbrautanna í alheiminum í kjölfar Miklahvells.

35
00:03:12,480 --> 00:03:15,110
Köld og rykug ský úr sameindagasi

36
00:03:15,110 --> 00:03:19,200
— staðina þar sem nýjar sólir og reikistjörnur verða til.

37
00:03:22,810 --> 00:03:25,370
Og efnafræði alheimsins.

38
00:03:29,170 --> 00:03:34,160
ALMA mun finna lífrænar sameindir — byggingareiningar lífsins.

39
00:03:38,260 --> 00:03:42,070
Smíði loftneta fyrir ALMA er í fullum gangi.

40
00:03:43,020 --> 00:03:46,420
Tveir risaflutningabílar, kallaðir Ottó og Lorre

41
00:03:46,420 --> 00:03:50,590
sjá um að flytja fullkláruð loftnetin upp á Chajnantor hásléttuna.

42
00:03:56,790 --> 00:03:58,690
Í 5.000 metra hæð yfir sjávarmáli

43
00:03:58,690 --> 00:04:02,980
gefur röðin betri mynd af alheiminum í örbylgjuljósi en nokkru sinni fyrr.

44
00:04:10,090 --> 00:04:11,950
Þegar ALMA er næstum fullkláruð

45
00:04:11,950 --> 00:04:16,060
eru enn nokkur ár í næsta draumatæki ESO.

46
00:04:16,060 --> 00:04:18,130
Sérðu fjallið þarna?

47
00:04:18,130 --> 00:04:20,769
Þetta er Cerro Armazones.

48
00:04:22,900 --> 00:04:24,260
Ekki svo ýkja langt frá Paranal

49
00:04:24,260 --> 00:04:29,500
en þar verður stærsti sjónauki í sögu mannkyns reistur.

50
00:04:30,000 --> 00:04:34,680
Hér gefur að líta European Extremely Large Telescope.

51
00:04:35,110 --> 00:04:37,820
Stærsta auga jarðar.

52
00:04:42,600 --> 00:04:45,730
Safnspegillinn verður næstum fjörutíu metrar í þvermál

53
00:04:45,730 --> 00:04:51,260
svo allir aðrir sjónaukar verða dvergvaxnir við hlið E-ELT.

54
00:04:53,290 --> 00:04:56,620
Næstum átta hundruð tölvustýrðir spegilhlutar.

55
00:04:58,280 --> 00:05:02,510
Sjóntækin eru flókin til að skörpustu hugsanlegu myndir náist.

56
00:05:04,990 --> 00:05:08,150
Hvolf á hæð við kirkjuturn.

57
00:05:13,120 --> 00:05:17,530
E-ELT er æfing í efsta stigi lýsingarorða.

58
00:05:20,670 --> 00:05:25,170
En að sjálfsögðu eru raunverulegu undrin þarna úti í alheiminum.

59
00:05:30,720 --> 00:05:35,100
E-ELT mun taka myndir af reikistjörnum á braut um aðrar stjörnur.

60
00:05:38,760 --> 00:05:42,820
Litrófsriti hans mun þefa af lofthjúpum þessara framandi hnatta

61
00:05:42,820 --> 00:05:45,120
í leit að ummerkjum lífs.

62
00:05:48,910 --> 00:05:54,250
Lengra í burtu mun E-ELT rannsaka stakar stjörnur í öðrum vetrarbrautum.

63
00:05:54,250 --> 00:05:59,080
Því mætti líkja við að hitta íbúa nágrannaborgar í fyrsta sinn.

64
00:06:00,000 --> 00:06:02,390
Þessi risavaxna tímavél

65
00:06:02,390 --> 00:06:06,130
gerir okkur kleift að horfa milljarða ára aftur í tímann

66
00:06:06,130 --> 00:06:08,400
og sjá hvernig allt saman hófst.

67
00:06:12,270 --> 00:06:15,770
Og hann gæti leyst ráðgátuna um vaxandi útþenslu alheimsins

68
00:06:15,770 --> 00:06:20,160
— þá dularfullu staðreynd að vetrarbrautir fjarlægjast hver aðra

69
00:06:20,160 --> 00:06:22,640
með sívaxandi hraða.

70
00:06:34,550 --> 00:06:38,910
Stjörnufræði er stór vísindagrein, grein stórra ráðgáta.

71
00:06:38,910 --> 00:06:40,500
Er líf utan jarðar?

72
00:06:40,500 --> 00:06:42,760
Hvernig varð alheimurinn til?

73
00:06:43,890 --> 00:06:48,980
Nýi risasjónauki ESO mun hjálpa okkur að skilja.

74
00:06:48,980 --> 00:06:53,000
Okkur vantar enn nokkuð upp á, en biðin styttist.

75
00:06:53,000 --> 00:06:54,310
Svo hvað er næst?

76
00:06:54,310 --> 00:06:55,910
Það veit enginn.

77
00:06:55,910 --> 00:06:58,970
En ESO er reiðubúin fyrir ævintýrið.

78
00:07:31,160 --> 00:07:34,970
Þetta er Dr J sem kveður úr þessum aukaþætti ESOcast.

79
00:07:34,970 --> 00:07:38,300
Fylgstu með nýjum stjarnfræðilegum ævintýrum í næsta þætti.

80
00:07:40,730 --> 00:07:42,000
ESOcast er framleitt af ESO

81
00:07:42,000 --> 00:07:44,000
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

82
00:07:44,910 --> 00:07:46,000
ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli,

83
00:07:46,000 --> 00:07:48,000
eru fremstu fjölþjóðlegu stjarnvísindasamtök heims.

84
00:07:48,000 --> 00:07:50,000
ESO er afkastamesta stjörnustöð heims, bæði meðal sjónauka á jörðinni og í geimnum.

85
00:07:53,480 --> 00:07:58,490
Handrit ESO; þýðing Sævar Helgi Bragason.

