﻿1
00:00:02,000 --> 00:00:04,000
Þetta er ESOcast!

2
00:00:04,260 --> 00:00:07,890
Vísindi í fremstu röð og lífið á bak við tjöldin hjá ESO,

3
00:00:07,890 --> 00:00:10,310
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli,

4
00:00:10,500 --> 00:00:17,980
könnun á undrum alheimsins með þáttarstjórnandanum Dr J, einnig þekktur sem Dr Joe Liske.

5
00:00:20,000 --> 00:00:23,500
Komið þið sæl og verið velkomin í þennan aukaþátt ESOcast.

6
00:00:23,500 --> 00:00:27,850
Í aðdraganda 50 ára afmælis ESO í október 2012

7
00:00:27,850 --> 00:00:30,630
munum við sýna átta sérstaka aukaþætti

8
00:00:30,630 --> 00:00:35,560
um fyrstu 50 árin í rannsóknum ESO á suðurhimninum.

9
00:00:39,080 --> 00:00:43,000
Í leit að lífi

10
00:00:45,500 --> 00:00:48,470
Hefur þú einhvern tímann velt fyrir þér lífi í alheiminum?

11
00:00:48,470 --> 00:00:51,600
Lífvænlegar reikistjörnur á braut um fjarlægar sólir?

12
00:00:51,600 --> 00:00:54,500
Það hafa stjörnufræðingar gert — um aldir.

13
00:00:54,500 --> 00:00:58,950
Í geimnum eru jú ótrúlega margar vetrarbrautir og aragrúi stjarna

14
00:00:58,950 --> 00:01:01,140
svo hvers vegna ætti jörðin að vera einstök?

15
00:01:02,500 --> 00:01:07,110
Árið 1995 urðu svissnesku stjörnufræðingarnir Michel Mayor og Didier Queloz

16
00:01:07,110 --> 00:01:11,660
fyrstir til að uppgötva fjarreikistjörnu á braut um venjulega stjörnu.

17
00:01:12,000 --> 00:01:16,490
Síðan hafa stjörnufræðingar fundið mörg hundruð fjarreikistjörnur.

18
00:01:16,490 --> 00:01:21,780
Stórar og smáar, heitar og kaldar og á fjölbreyttum sporbaugum.

19
00:01:22,600 --> 00:01:26,800
Í dag erum við á mörkum þess að finna tvíburasystur jarðar.

20
00:01:27,290 --> 00:01:33,290
Og í framtíðinni: Reikistjörnu með lífi — hið heilaga gral stjörnulíffræðinga.

21
00:01:39,590 --> 00:01:43,070
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli leikur mikilvægt hlutverk

22
00:01:43,070 --> 00:01:45,310
í leitinni að fjarreikistjörnum.

23
00:01:46,290 --> 00:01:50,560
Hópur Michel Mayors hefur fundið nokkur hundruð slíkar frá La Silla fjalli.

24
00:01:50,560 --> 00:01:53,880
Þar sem ESO náði fyrst fótfestu í Chile.

25
00:01:54,890 --> 00:01:56,880
Þetta er CORALIE litrófsritinn

26
00:01:56,880 --> 00:02:00,120
á svissneska Leonhard Euler sjónaukanum.

27
00:02:02,030 --> 00:02:07,940
Hann mælir hárfínt vagg stjarna sem hlýst af þyngdartogi reikistjarna á braut um þær.

28
00:02:07,940 --> 00:02:14,910
3,6 metra sjónauki ESO leitar líka að fjarreikistjörnum.

29
00:02:16,200 --> 00:02:19,320
HARPS litrófsritinn er sá nákvæmasti í heiminum.

30
00:02:19,320 --> 00:02:23,680
Hann hefur fundið yfir 150 reikistjörnur hingað til.

31
00:02:28,750 --> 00:02:30,360
Hans mesta uppgötvun:

32
00:02:30,360 --> 00:02:36,950
Sólkerfi að minnsta kosti fimm, allt að sjö reikistjarna.

33
00:02:48,330 --> 00:02:50,960
En það eru aðrar leiðir til að leita að fjarreikistjörnum.

34
00:02:59,130 --> 00:03:05,350
Árið 2006 hjálpaði danski 1,5 metra sjónaukinn til við uppgötvun á fjarlægri reikistjörnu

35
00:03:05,350 --> 00:03:08,350
sem er aðeins fimm sinnum massameiri en jörðin.

36
00:03:12,500 --> 00:03:16,200
Hvernig? Með örlinsuhrifum.

37
00:03:17,040 --> 00:03:22,150
Reikistjarnan og móðurstjarnan gengu fyrir bjartari stjörnu í bakgrunni

38
00:03:22,150 --> 00:03:24,320
og mögnuðu myndina af henni.

39
00:03:26,420 --> 00:03:31,660
Í sumum tilvikum er jafnvel hægt að fanga fjarreikistjörnu á mynd.

40
00:03:34,960 --> 00:03:41,240
Árið 2004 tók NACO, aðlögunarsjóntæki á Very Large Telescope

41
00:03:41,240 --> 00:03:45,220
fyrstu myndina af fjarreikistjörnu.

42
00:03:45,220 --> 00:03:51,020
Rauði bletturinn á myndinni er risareikistjarna á braut um brúnan dverg.

43
00:03:54,880 --> 00:03:59,650
Árið 2010 gekk NACO skrefi lengra.

44
00:04:01,440 --> 00:04:05,330
Þessi stjarna er í 130 ljósára fjarlægð frá jörðinni.

45
00:04:05,330 --> 00:04:12,080
Hún er yngri og bjartari en sólin og fjórar reikistjörnur ganga um hana á víðum brautum.

46
00:04:13,900 --> 00:04:18,970
Haukfrán sjón NACO gerði mönnum kleift að mæla ljósið frá reikistjörnu c

47
00:04:18,970 --> 00:04:23,490
— gasrisa sem er tíu sinnum massameiri en Júpíter.

48
00:04:25,070 --> 00:04:27,450
Þrátt fyrir glýjuna frá móðurstjörnunni

49
00:04:27,450 --> 00:04:31,450
var hægt að teygja á daufu ljósi reikistjörnunnar í litróf

50
00:04:31,450 --> 00:04:34,380
sem veitti upplýsingar um lofthjúpinn.

51
00:04:36,270 --> 00:04:42,740
Í dag fnnast margar fjarreikistjörnur þegar þær ganga þvert fyrir sínar móðurstjörnur.

52
00:04:42,740 --> 00:04:46,020
Ef við sjáum braut reikistjörnu á rönd

53
00:04:46,020 --> 00:04:49,390
gengur hún fyrir sína móðurstjörnu í hverri umferð.

54
00:04:49,390 --> 00:04:53,870
Þannig dregur hún reglulega örlítið úr birtunni frá stjörnunni

55
00:04:53,870 --> 00:04:57,310
og kemur upp um tilvist sína.

56
00:05:00,010 --> 00:05:04,600
TRAPPIST sjónaukinn á La Silla mun hjálpa til við leitina að þessum þvergöngum.

57
00:05:05,250 --> 00:05:06,570
Á sama tíma

58
00:05:06,570 --> 00:05:13,120
hefur Very Large Telescope rannsakað þvergöngu reikistjörnu í smáatriðum.

59
00:05:13,910 --> 00:05:21,820
Hér er GJ1214b, risajörð sem er 2,6 sinnum stærri en jörðin.

60
00:05:24,010 --> 00:05:30,040
Þegar hún gengur fyrir sína sól gleypir lofthjúpur hennar ljósið frá móðurstjörnunni.

61
00:05:34,200 --> 00:05:39,740
Hinn næmi FORS litrófsriti ESO hefur fundið út að GJ1214b

62
00:05:39,740 --> 00:05:44,000
gæti verið heitur og gufukenndur hnöttur.

63
00:05:46,920 --> 00:05:51,060
Gasrisar og gufubaðshnettir eru ólífvænlegir.

64
00:05:51,060 --> 00:05:54,060
En leitinni er hvergi nærri lokið.

65
00:05:55,010 --> 00:05:59,420
Fljótlega verður SPHERE mælitækinu komið fyrir á VLT.

66
00:05:59,420 --> 00:06:05,490
SPHERE mun geta greint daufar reikistjörnur í glýju móðurstjarnanna.

67
00:06:06,200 --> 00:06:12,140
Árið 2016 verður svo ESPRESSO litrófsritanum komið fyrir á VLT

68
00:06:12,140 --> 00:06:16,110
sem verður miklu betri en HARPS mælitækið.

69
00:06:18,000 --> 00:06:21,850
Og þegar Extemely Large Telescope ESO verður tilbúinn

70
00:06:21,850 --> 00:06:26,170
gæti hann fundið merki um lífhvolf á öðrum hnöttum.

71
00:06:33,480 --> 00:06:36,390
Jörðin er uppfull af lífi.

72
00:06:37,960 --> 00:06:46,640
Norður Chile hefur sinn skerf af kondórum, lamadýrum, nagdýrum og risakaktusum.

73
00:06:48,910 --> 00:06:53,830
Skrælnaður jarðvegur Atacamaeyðimerkurinnar iðar meira að segja af harðgerum örverum.

74
00:06:57,970 --> 00:07:02,300
Við höfum fundið byggingareiningar lífs í geimnum.

75
00:07:03,000 --> 00:07:05,790
Komist að því að reikistjörnur eru algengar.

76
00:07:10,110 --> 00:07:15,190
Fyrir milljörðum ára báru halastjörnur vatn og lífrænar sameindir til jarðar.

77
00:07:17,540 --> 00:07:21,250
Hví skyldi hið sama ekki gerast annars staðar í geimnum?

78
00:07:26,500 --> 00:07:28,400
Eða erum við kannski ein?

79
00:07:30,040 --> 00:07:32,080
Það er stærsta spurningin.

80
00:07:33,480 --> 00:07:36,530
Og svarið er næstum í seilingarfjarlægð.

81
00:07:46,000 --> 00:07:49,990
Þetta er Dr J sem kveður úr þessum sérstaka aukaþætti ESOcast.

82
00:07:49,990 --> 00:07:53,260
Fylgstu með nýjum stjarnfræðilegum ævintýrum í næsta þætti.

83
00:07:55,730 --> 00:07:57,500
ESOcast er framleitt af ESO,

84
00:07:57,500 --> 00:07:59,300
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

85
00:07:59,300 --> 00:08:01,500
ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli,

86
00:08:01,500 --> 00:08:03,000
eru fremstu fjölþjóðlegu stjarnvísindasamtök heims.

87
00:08:03,000 --> 00:08:05,000
ESO er afkastamesta stjörnustöð í heimi, bæði meðal sjónauka á jörðinni og í geimnum.

88
00:08:08,350 --> 00:08:13,240
Handrit ESO; þýðing Sævar Helgi Bragason

