﻿1
00:00:02,000 --> 00:00:04,090
Þetta er ESOcast!

2
00:00:04,090 --> 00:00:07,760
Vísindi í fremstu röð og lífið á bak við tjöldin hjá ESO

3
00:00:07,760 --> 00:00:10,270
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli

4
00:00:10,270 --> 00:00:18,010
könnun á undrum alheimsins með þáttarstjórnandanum Dr. J, einnig þekktur sem Dr Joe Liske.

5
00:00:20,270 --> 00:00:23,300
Komið þið sæl og verið velkomin í þennan aukaþátt ESOcast.

6
00:00:23,500 --> 00:00:27,950
Í aðdraganda 50 ára afmælis ESO í október 2012

7
00:00:27,950 --> 00:00:30,600
munum við sýna átta sérstaka aukaþætti

8
00:00:30,600 --> 00:00:35,580
um fyrstu 50 árin í rannsóknum ESO á suðurhimninum.

9
00:00:39,260 --> 00:00:44,850
Að fanga ljósið

10
00:00:50,500 --> 00:00:52,330
Í hálfa öld

11
00:00:52,330 --> 00:00:57,480
hefur Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli sýnt okkur undur alheimsins.

12
00:01:04,230 --> 00:01:06,320
Ljósi frá stjörnunum rignir niður á jörðina.

13
00:01:08,370 --> 00:01:11,050
Risasjónaukar grípa ljóseindirnar úr geimnum

14
00:01:11,050 --> 00:01:14,920
og beina þeim í myndavélar og litrófsrita sem eru í hæsta gæðaflokki.

15
00:01:18,070 --> 00:01:22,790
Stjörnuljósmyndir nútímans eru gerólíkar þeim sem teknar voru upp úr 1960.

16
00:01:24,000 --> 00:01:27,110
Þegar ESO tók til starfa árið 1962

17
00:01:27,110 --> 00:01:31,090
notuðu stjörnufræðingar stórar ljósmyndaplötur úr gleri.

18
00:01:32,530 --> 00:01:36,710
Ekki mjög ljósnæmar, ónákvæmar og erfiðar viðfangs.

19
00:01:41,550 --> 00:01:45,200
Hvílík breyting sem varð með tilkomu rafeindabúnaðar nútímans!

20
00:01:46,000 --> 00:01:48,480
Þeir fanga næstum hverja einustu ljóseind.

21
00:01:49,000 --> 00:01:51,980
Myndirnar eru strax aðgengilegar.

22
00:01:51,980 --> 00:01:53,920
Og það sem meira er,

23
00:01:53,920 --> 00:01:57,900
þá er hægt að vinna þær og rannsaka með hugbúnaði í tölvum.

24
00:01:59,000 --> 00:02:02,670
Stjörnufræði er sannarlega orðin stafræn vísindagrein.

25
00:02:09,530 --> 00:02:11,770
Sjónaukar ESO nota sum af stærstu

26
00:02:11,770 --> 00:02:14,440
og ljósnæmustu mælitækjum heims.

27
00:02:14,440 --> 00:02:21,440
Myndavél VISTA hefur hvorki fleiri né færri en 16 ljósnema, í heild 67 milljón pixla.

28
00:02:24,020 --> 00:02:28,790
Þetta stóra mælitæki fangar innrautt ljós frá rykskýjum í geimnum,

29
00:02:28,790 --> 00:02:30,120
nýfæddum stjörnum

30
00:02:30,120 --> 00:02:33,190
og fjarlægum vetrarbrautum.

31
00:02:40,510 --> 00:02:46,180
Nemarnir eru kældir niður í mínus 269 gráður með fljótandi helíni.

32
00:02:46,180 --> 00:02:49,930
VISTA skrásetur suðurhimininn

33
00:02:49,930 --> 00:02:53,650
eins og landkönnuður sem kortleggur ókannað meginland.

34
00:02:56,460 --> 00:02:59,890
VLT Survey Telescope er önnur vél nýrra uppgötvana

35
00:02:59,890 --> 00:03:02,630
en hún sér sýnilegt ljós.

36
00:03:09,000 --> 00:03:12,650
Myndavél þessa sjónauka kallast OmegaCAM og er enn stærri.

37
00:03:12,650 --> 00:03:18,220
32 CCD myndflögur sem saman taka glæsilegar ljósmyndir

38
00:03:18,220 --> 00:03:23,080
sem eru hvorki meira né minna en 268 milljón pixlar.

39
00:03:25,850 --> 00:03:28,910
Sjónsviðið er ein fegráða

40
00:03:28,910 --> 00:03:31,960
— fjórfalt stærra en fullt tungl á himninum.

41
00:03:34,650 --> 00:03:39,200
OmegaCAM safnar fimmtíu gígabætum af gögnum á hverri nóttu.

42
00:03:40,000 --> 00:03:43,510
Og það eru bara glæsilegu gígabætin.

43
00:03:46,660 --> 00:03:49,790
Kortlagningarsjónaukar eins og VISTA og VST

44
00:03:49,790 --> 00:03:53,880
leita líka að sjaldgæfum og áhugaverðum fyrirbærum á himninum.

45
00:03:54,480 --> 00:03:57,830
Stjörnufræðingar nota síðan afl VLT

46
00:03:57,830 --> 00:04:01,470
til að rannsaka þessi fyrirbæri í smáatriðum.

47
00:04:04,270 --> 00:04:06,360
Allir VLT sjónaukarnir fjórir

48
00:04:06,360 --> 00:04:08,780
hafa sín eigin mælitæki

49
00:04:08,780 --> 00:04:11,780
og hvert hefur sína styrkleika.

50
00:04:12,980 --> 00:04:20,290
Án þessara mælitækja væri risaauga ESO á himninum, tja, blint.

51
00:04:21,329 --> 00:04:27,910
Þau bera skrautleg nöfn eins og ISAAC, FLAMES, HAWK-I og SINFONI.

52
00:04:28,860 --> 00:04:33,330
Risavaxnar hátæknivélar, hver á stærð við lítinn bíl.

53
00:04:35,000 --> 00:04:36,500
Tilgangurinn:

54
00:04:36,500 --> 00:04:41,850
Að fanga ljóseindir úr geimnum og safna öllum mögulegum upplýsingum.

55
00:04:44,000 --> 00:04:48,610
Öll þessi mælitæki eru einstök en sum eru örlítið sérstakari en önnur.

56
00:04:48,610 --> 00:04:55,350
Til dæmis nota NACO sem hér sést og SINFONI, aðlögunarsjóntæki VLT.

57
00:04:58,500 --> 00:05:01,430
Leysigeislar búa til gervistjörnur

58
00:05:01,430 --> 00:05:05,200
sem hjálpa stjörnufræðingum að leiðrétta bjögun lofthjúpsins.

59
00:05:11,830 --> 00:05:16,230
Myndir NACO eru jafn skarpar og ef þær væru teknar í geimnum.

60
00:05:19,000 --> 00:05:24,700
Og svo eru það MIDI og AMBER. Tvö víxlmælingatæki.

61
00:05:25,500 --> 00:05:30,310
Hér er ljósbylgjum frá tveimur eða fleiri sjónaukum safnað saman

62
00:05:30,310 --> 00:05:33,860
líkt og ef einn stór spegill hefði fangað þær.

63
00:05:36,500 --> 00:05:37,500
Afraksturinn:

64
00:05:38,260 --> 00:05:40,390
Skörpustu myndir sem hægt er að ímynda sér.

65
00:05:44,500 --> 00:05:47,370
En stjörnufræði snýst ekki bara um að taka myndir.

66
00:05:47,370 --> 00:05:49,060
Ef þú ert á höttunum eftir smáatriðum

67
00:05:49,060 --> 00:05:53,270
verður þú að kljúfa ljósið frá stjörnunum og rannsaka samsetningu þess.

68
00:05:56,320 --> 00:06:00,030
Litrófsgreining er eitt öflugasta tæki stjörnufræðinnar.

69
00:06:05,820 --> 00:06:09,760
Ekki skrítið að ESO búi yfir sumum af þróuðustu litrófsritum heims

70
00:06:09,760 --> 00:06:12,220
eins og hinum öfluga X-Shooter.

71
00:06:13,400 --> 00:06:18,410
Myndir eru fallegri en litrófin geyma meiri upplýsingar.

72
00:06:22,250 --> 00:06:23,500
Efnasamsetningu.

73
00:06:24,500 --> 00:06:25,760
Hreyfingar.

74
00:06:26,750 --> 00:06:28,040
Aldur.

75
00:06:34,250 --> 00:06:38,990
Lofthjúpa fjarreikistjarna á braut um fjarlægar stjörnur.

76
00:06:42,530 --> 00:06:46,870
Eða nýfæddar vetrarbrautir við endimörk hins sýnilega alheims.

77
00:06:50,330 --> 00:06:55,510
Án litrófsgreiningar værum við lítið annað en könnuðir sem stara á fallegt landslag.

78
00:06:55,510 --> 00:06:56,960
Með litrófsgreiningu

79
00:06:56,960 --> 00:07:02,550
lærum við um staðfræði, jarðfræði, sögu og samsetningu landslagsins.

80
00:07:12,240 --> 00:07:14,060
Og eitt í viðbót.

81
00:07:18,040 --> 00:07:22,910
Þrátt fyrir kyrrláta fegurð er alheimurinn ofsafenginn staður.

82
00:07:24,990 --> 00:07:26,680
Fyrirbæri taka breytingum á næturnar

83
00:07:26,680 --> 00:07:30,660
og stjörnufræðingar vilja sjá hvern einasta atburð.

84
00:07:34,000 --> 00:07:39,280
Massamiklar stjörnur enda líf sitt sem sprengistjörnur

85
00:07:45,560 --> 00:07:48,450
Sumar sprengistjörnur eru svo öflugar

86
00:07:48,450 --> 00:07:51,620
að þær skína skærar en hýsilvetrarbrautin

87
00:07:51,620 --> 00:07:57,300
og sendir flaum af ósýnilegum háorku gammageislum um geiminn.

88
00:07:59,300 --> 00:08:04,960
Litlir sjálfvirkir sjónaukar bregðast sjálfkrafa við skilaboðum frá gervitunglum.

89
00:08:04,960 --> 00:08:11,990
Á örfáum sekúndum koma þeir sér fyrir og rannsaka afleiðingar sprenginganna.

90
00:08:13,160 --> 00:08:16,660
Öðrum sjálfvirkum sjónaukum er beint að heldur rólegri atburðum,

91
00:08:16,660 --> 00:08:21,490
eins og þegar fjarlægar reikistjörnur ganga fyrir móðurstjörnur sínar.

92
00:08:24,240 --> 00:08:27,150
Alheimurinn tekur sífelldum breytingum.

93
00:08:27,150 --> 00:08:30,670
ESO reynir að missa ekki af neinu.

94
00:08:33,000 --> 00:08:36,880
Heimsfræði er rannsókn á alheiminum sem heild.

95
00:08:36,880 --> 00:08:41,090
Uppbyggingu hans, þróun og uppruna.

96
00:08:45,000 --> 00:08:49,800
Hér er nauðsynlegt að fanga eins mikið ljós og mögulegt er.

97
00:08:49,800 --> 00:08:55,860
Þessar vetrarbrautir eru svo órafjarri að örfáar ljóseindir ná til jarðar.

98
00:08:58,000 --> 00:09:01,490
En í þessum ljóseindum eru geymdar vísbendingar um alheiminn í fyrndinni.

99
00:09:03,300 --> 00:09:05,750
Þær hafa ferðast um geiminn í milljarða ára.

100
00:09:05,750 --> 00:09:09,450
Þær draga upp mynd af árdögum alheimsins.

101
00:09:10,000 --> 00:09:15,130
Þess vegna eru stórir sjónaukar og næm mælitæki svo mikilvæg.

102
00:09:15,930 --> 00:09:18,050
Síðastliðin fimmtíu ár

103
00:09:18,050 --> 00:09:22,500
hafa sjónaukar ESO komið auga á margar af fjarlægustu vetrarbrautum og dulstirnum

104
00:09:22,500 --> 00:09:24,560
sem nokkurn tímann hafa sést.

105
00:09:28,000 --> 00:09:31,960
Þeir hjálpa jafnvel til við að afhjúpa dreifingu hulduefnis

106
00:09:31,960 --> 00:09:34,950
en eðli þess er okkur enn hulin ráðgáta.

107
00:09:41,560 --> 00:09:47,770
Hver veit hvað næstu fimmtíu ár bera í skauti sér?

108
00:09:50,250 --> 00:09:54,550
Þetta er Dr J sem kveður úr þessum sérstaka aukaþætti ESOcast.

109
00:09:54,550 --> 00:09:57,740
Fylgstu með nýjum stjarnfræðilegum ævintýrum í næsta þætti.

110
00:10:00,320 --> 00:10:01,820
ESOcast er framleitt af ESO,

111
00:10:01,820 --> 00:10:03,190
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

112
00:10:04,000 --> 00:10:05,540
ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli,

113
00:10:05,540 --> 00:10:07,020
eru fremstu fjölþjóðlegu stjarnvísindasamtök veraldar.

114
00:10:07,020 --> 00:10:09,000
ESO er afkastamesta stjörnustöð heims, bæði meðal sjónauka á jörðinni og í geimnum.

115
00:10:12,890 --> 00:10:17,680
Handrit ESO; þýðing Sævar Helgi Bragason

