﻿1
00:00:02,000 --> 00:00:04,000
Þetta er ESOcast!

2
00:00:04,000 --> 00:00:08,000
Vísindi í fremstu röð og lífið á bakvið tjöldin hjá ESO,

3
00:00:08,000 --> 00:00:10,000
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli,

4
00:00:11,000 --> 00:00:18,000
könnun á undrum alheimsins með þáttarstjórnandanum Dr. J., sem einnig er þekktur sem Dr Joe Liske.

5
00:00:20,000 --> 00:00:23,000
Komið þið sæl og verið velkomin í þennan aukaþátt ESOcast.

6
00:00:24,000 --> 00:00:27,500
Í aðdraganda 50 ára afmælis ESO í október 2012

7
00:00:27,500 --> 00:00:30,000
munum við sýna átta sérstaka aukaþætti

8
00:00:30,000 --> 00:00:35,000
um fyrstu 50 árin í rannsóknum ESO á suðurhimninum.

9
00:00:40,000 --> 00:00:44,000
Alheimur í öðru ljósi

10
00:00:51,000 --> 00:00:52,300
Góð tónlist, ekki satt?

11
00:00:53,440 --> 00:00:55,800
En hugsaðu þér að þú værir heyrnarskert(ur).

12
00:00:55,800 --> 00:00:59,330
Hvað ef þú heyrðir ekki lágtíðnina?

13
00:01:00,660 --> 00:01:02,460
Eða hátíðnina?

14
00:01:04,260 --> 00:01:06,950
Stjörnufræðingar voru eitt sinn í svipuðum sporum.

15
00:01:07,650 --> 00:01:12,960
Mannsaugað greinir aðeins lítinn hluta af allri geislun í alheiminum.

16
00:01:12,960 --> 00:01:16,980
Við sjáum ekki ljós sem hefur styttri bylgjulengdir en fjólubláar bylgjur

17
00:01:16,980 --> 00:01:19,040
eða lengri en rauðar bylgjur.

18
00:01:19,770 --> 00:01:22,890
Við greinum einfaldlega ekki alla alheimssinfóníuna.

19
00:01:25,000 --> 00:01:30,500
Árið 1800 uppgötvaði William Herschel innrautt ljós eða varmageislun.

20
00:01:34,080 --> 00:01:37,130
Í dimmu herbergi sérðu mig ekki.

21
00:01:38,000 --> 00:01:42,580
En ef þú setur á þig innrauð gleraugu „sérðu“ líkamshita minn.

22
00:01:45,690 --> 00:01:51,790
Á sama hátt sjá innrauðir sjónaukar fyrirbæri í geimnum sem eru of köld til að gefa frá sér sýnilegt ljós,

23
00:01:51,790 --> 00:01:56,380
eins og dökk gas- og rykský þar sem stjörnur og reikistjörnur verða til.

24
00:02:05,500 --> 00:02:06,570
Í áratugi

25
00:02:06,570 --> 00:02:09,250
hafa stjörnufræðingar ESO viljað kanna alheiminn

26
00:02:09,250 --> 00:02:11,170
í innrauðum bylgjulengdum.

27
00:02:11,910 --> 00:02:14,850
Fyrstu nemarnir voru litlir og þar af leiðandi afkastalitlir.

28
00:02:15,490 --> 00:02:18,610
Þeir gáfu okkur þokukennda sýn á himininn í innrauðu ljósi.

29
00:02:20,890 --> 00:02:24,530
Innrauðar myndavélar nútímans eru stórar og öflugar.

30
00:02:24,530 --> 00:02:29,410
Þær eru kældar niður í mjög lágt hitastigi til að auka næmnina.

31
00:02:31,000 --> 00:02:35,820
Og Very Large Telescope ESO er hannaður til að nýta þær til fulls.

32
00:02:40,710 --> 00:02:47,580
Sumar tæknibrellur stjörnufræðinga, eins og víxlmælingar, virka aðeins í innrauðu ljósi.

33
00:02:49,950 --> 00:02:54,190
Við höfum víkkað sjóndeildarhring okkar og séð alheiminn í nýju ljósi.

34
00:02:57,860 --> 00:03:03,820
Þessi dökki hnoðri er ský úr geimryki sem hylur stjörnurnar í bakgrunni.

35
00:03:03,820 --> 00:03:08,530
En í innrauðu ljósi getum við horft í gegnum rykið.

36
00:03:10,560 --> 00:03:14,040
Hér sérðu Sverðþokuna í Óríon, stjörnuhreiður.

37
00:03:14,040 --> 00:03:18,470
Flest nýfæddu ungstirnin eru falin í rykskýjum.

38
00:03:18,470 --> 00:03:24,720
Aftur kemur innrautt ljós til hjálpar og sýnir stjörnur í mótun!

39
00:03:35,920 --> 00:03:39,730
Við ævilok blása stjörnurnar út gasblöðrum.

40
00:03:39,730 --> 00:03:43,450
Þær eru einstaklega fallegar í sýnilegu ljósi

41
00:03:43,450 --> 00:03:47,630
— en á innrauðu myndinni sjást miklu fleiri smáatriði.

42
00:03:49,980 --> 00:03:52,320
Gleymdu ekki stjörnunum og gasskýjunum

43
00:03:52,320 --> 00:03:57,310
sem risasvartholið í hjarta Vetrarbrautarinnar er að gleypa.

44
00:03:57,310 --> 00:04:00,990
Þetta sæjum við aldrei án innrauðra myndavéla.

45
00:04:03,170 --> 00:04:04,320
Í öðrum vetrarbrautum

46
00:04:04,320 --> 00:04:09,460
hafa rannsóknir á innrauðu ljósi sýnt dreifingu stjarna á borð við sólina okkar.

47
00:04:12,410 --> 00:04:16,089
Fjarlægustu vetrarbrautir alheims er aðeins hægt að rannsaka í innrauðu.

48
00:04:16,089 --> 00:04:19,000
Ljós þeirra hefur færst yfir á þessar löngu bylgjulengdir

49
00:04:19,269 --> 00:04:21,500
af völdum útþenslu alheimsins.

50
00:04:23,890 --> 00:04:28,230
Ofan á litlum fjallstindi skammt frá Paranal er einangruð bygging.

51
00:04:28,910 --> 00:04:32,500
Innan í henni er hinn 4,1 metra breiði VISTA sjónauki.

52
00:04:32,970 --> 00:04:36,520
Hann var smíðaður í Bretlandi, tíunda aðildarriki ESO.

53
00:04:44,100 --> 00:04:47,230
Nú um stundir sér VISTA aðeins innrautt ljós.

54
00:04:47,230 --> 00:04:51,990
Á sjónaukanum er risavaxin myndavél, álíka þung og pallbíll.

55
00:04:52,460 --> 00:04:58,540
Og já, VISTA gefur okkur einstakar myndir af alheiminum í innrauðu.

56
00:04:59,880 --> 00:05:03,700
Frá upphafi, fyrir 50 árum síðan, hefur ESO gert rannsóknir í sýnilegu ljósi.

57
00:05:06,840 --> 00:05:09,850
Og innrauðar rannsóknir í um þrjátíu ár.

58
00:05:15,200 --> 00:05:18,040
En það er ýmislegt fleira mælanlegt í alheimssinfóníunni.

59
00:05:20,000 --> 00:05:24,200
Í fimm þúsund metra hæð yfir sjávarmáli, hátt í Andesfjöllum Chile,

60
00:05:24,200 --> 00:05:26,400
er Chajnantor hásléttan.

61
00:05:27,920 --> 00:05:30,720
Þar rísa stjarnvísindin hæst.

62
00:05:34,020 --> 00:05:36,740
Chajnantor er heimili ALMA

63
00:05:38,030 --> 00:05:41,240
– Atacama Large Millimeter/submillimeter Array.

64
00:05:42,280 --> 00:05:44,160
ALMA er enn í smíðum

65
00:05:44,650 --> 00:05:48,020
á stað sem er svo fjandsamlegur að jafnvel erfitt er að draga andann!

66
00:05:51,210 --> 00:05:54,140
Þegar aðeins tíu af 66 loftnetum höfðu verið sett upp

67
00:05:54,140 --> 00:05:58,660
gerði ALMA sínar fyrstu mælingar haustið 2011.

68
00:06:03,080 --> 00:06:09,050
Millímetrabylgjur utan úr geimnum. Til að greina þær þarf að fara hátt yfir sjó á þurran stað.

69
00:06:09,050 --> 00:06:13,810
Chajnantor er einn besti staður heims fyrir slíkt.

70
00:06:18,580 --> 00:06:24,360
Köld gas- og rykský verða sýnileg þegar vetrarbrautir rekast saman.

71
00:06:24,870 --> 00:06:29,440
Þetta eru ekki staðir þar sem stjörnur fæðast, heldur þar sem þær eru getnar.

72
00:06:32,540 --> 00:06:36,170
Og þessar þyrilbylgjur í útstreymi deyjandi stjörnu

73
00:06:36,170 --> 00:06:39,210
— gætu þær verið vegna reikistjörnu?

74
00:06:43,750 --> 00:06:45,480
Með því að breyta því hvernig við sjáum alheiminn,

75
00:06:45,480 --> 00:06:49,710
færumst við nær uppruna reikistjarna, stjarna og vetrarbraut.

76
00:06:50,310 --> 00:06:53,500
Að alheimssinfóníunni í heild sinni.

77
00:07:03,500 --> 00:07:07,600
Þetta er Dr. J sem kveður úr þessum aukaþætti ESOcast.

78
00:07:07,600 --> 00:07:10,730
Fylgstu með nýjum stjarnfræðilegum ævintýrum í næsta þætti.

79
00:07:13,460 --> 00:07:15,000
ESOcast er framleitt af ESO,

80
00:07:15,000 --> 00:07:16,500
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

81
00:07:16,500 --> 00:07:18,940
ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli,

82
00:07:18,940 --> 00:07:21,000
eru fremstu fjölþjóðlegu stjarnvísindasamtök heims,

83
00:07:21,000 --> 00:07:22,500
sem hannar, smíðar og starfrækir öflugustu stjörnustöðvar veraldar.

84
00:07:25,970 --> 00:07:30,070
Handrit ESO; þýðing: Sævar Helgi Bragason

