﻿1
00:00:02,350 --> 00:00:03,930
Þetta er ESOcast!

2
00:00:04,580 --> 00:00:07,800
Vísindi í fremstu röð og lífið á bakvið tjöldin hjá ESO

3
00:00:07,800 --> 00:00:10,360
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli,

4
00:00:10,360 --> 00:00:17,650
könnun á undrum alheimsins með þáttarstjórnandanum Dr. J, sem einnig er þekktur sem Dr. Joe Liske.

5
00:00:20,360 --> 00:00:23,230
Komið þið sæl og verið velkomin í þennan aukaþátt ESOcast.

6
00:00:23,230 --> 00:00:27,790
Í aðdraganda 50 ára afmælis ESO í október 2012

7
00:00:27,790 --> 00:00:30,330
munum við sýna átta aukaþætti

8
00:00:30,330 --> 00:00:35,490
um fyrstu 50 árin í rannsóknum ESO á suðurhimninum.

9
00:00:40,060 --> 00:00:44,620
Að sjá skýrt

10
00:00:46,000 --> 00:00:49,570
Stærra er betra — að minnsta kosti þegar um spegilsjónauka er að ræða.

11
00:00:49,570 --> 00:00:54,650
Stórir speglar þurfa hins vegar að vera þykkir svo þeir aflagist ekki undan eigin þunga.

12
00:00:55,320 --> 00:00:59,590
Í rauninni aflagast stórir speglar hvort sem er, sama hversu þykkir og þungir þeir eru.

13
00:01:00,660 --> 00:01:07,340
Lausnin? Þunnir, léttir speglar og töfrabragð sem kallast virk sjóntæki.

14
00:01:08,310 --> 00:01:11,330
ESO ruddi brautina fyrir þessa tækni í lok níunda áratugarins

15
00:01:11,330 --> 00:01:14,020
með New Technology Telescope.

16
00:01:15,430 --> 00:01:17,690
Og þetta er eins og hún gerist best.

17
00:01:17,690 --> 00:01:23,740
Speglar Very Large Telescope (VLT) eru 8,2 metrar í þvermál...

18
00:01:23,740 --> 00:01:26,480
...en aðeins 20 sentímetra þykkir.

19
00:01:27,310 --> 00:01:28,310
Brellan er þessi:

20
00:01:28,970 --> 00:01:31,310
Tölvustýrt stuðningskerfi sem tryggir

21
00:01:31,310 --> 00:01:37,060
að speglarnir halda ávallt réttri lögun með nanómetra nákvæmni.

22
00:01:53,620 --> 00:01:56,930
VLT er flaggskip ESO.

23
00:01:56,930 --> 00:02:03,840
Fjórir nákvæmlega eins sjónaukar sem sameina krafta sína á tindi Cerro Paranal í norður Chile.

24
00:02:03,840 --> 00:02:06,020
Þeir voru smíðaðir í lok tíunda áratugarins

25
00:02:06,020 --> 00:02:10,720
og tryggja stjörnufræðingum bestu tækni sem völ er á.

26
00:02:15,560 --> 00:02:20,910
Í miðri Atacamaeyðimörkinni bjó ESO til paradís stjörnufræðingsins.

27
00:02:36,220 --> 00:02:38,540
Vísindamennirnir gista í La Residencia

28
00:02:38,540 --> 00:02:42,220
hóteli sem var að hluta til grafið undir jarðveginn

29
00:02:42,220 --> 00:02:44,370
á einum þurrasta stað veraldar.

30
00:02:44,850 --> 00:02:50,920
Innandyra eru pálmatré, sundlaug og... ljúffeng chilesk sætindi.

31
00:02:54,240 --> 00:02:54,510
Að sjálfsögðu

32
00:02:54,510 --> 00:02:59,000
er helsta aðdráttarafl Very Large Telescope ekki sundlaugin

33
00:02:59,000 --> 00:03:02,770
heldur óviðjafnanlegt útsýni út í alheiminn.

34
00:03:07,580 --> 00:03:11,690
Án þunnra spegla og virkra sjóntækja væri VLT óhugsandi.

35
00:03:12,180 --> 00:03:13,260
En það er fleira.

36
00:03:13,260 --> 00:03:18,530
Stjörnurnar sýnast móðukenndar, jafnvel séðar með bestu og stærstu sjónaukunum.

37
00:03:18,530 --> 00:03:22,570
Ástæðan? Lofthjúpur jarðar bjagar myndirnar.

38
00:03:27,280 --> 00:03:31,390
Þá kemur önnur brella til sögunnar: Aðlögunarsjóntæki.

39
00:03:33,110 --> 00:03:39,390
Á Paranal er leysigeislum skotið upp í næturhimininn og þannig útbúnar gervistjörnur.

40
00:03:39,390 --> 00:03:43,000
Nemar nota gervistjörnurnar til að mæla bjögun lofthjúpsins.

41
00:03:43,000 --> 00:03:46,130
Hundrað sinnum á sekúndu,

42
00:03:46,130 --> 00:03:50,400
er myndin leiðrétt með tölvustýrðum, sveigjanlegum speglum.

43
00:03:51,910 --> 00:03:57,670
Og árangurinn? Líkt og ef ókyrr lofthjúpurinn væri tekinn burt.

44
00:03:58,070 --> 00:03:59,430
Sjáðu muninn!

45
00:04:06,450 --> 00:04:09,860
Vetrarbrautin okkar er stór þyrilþoka.

46
00:04:09,860 --> 00:04:14,170
Í kjarna hennar — í 27.000 ljósára fjarlægð —

47
00:04:14,170 --> 00:04:19,610
er ráðgáta sem Very Large Telescope ESO hjálpaði til við að leysa.

48
00:04:21,839 --> 00:04:25,490
Stór rykský birgja okkur sýn inn að miðju vetrarbrautarinnar.

49
00:04:25,490 --> 00:04:29,540
En næmar innrauðar myndavélar geta skyggnst í gegnum rykið

50
00:04:29,540 --> 00:04:32,270
og svipt hulunni af því sem leynist bakvið.

51
00:04:38,200 --> 00:04:43,540
Með hjálp aðlögunarsjóntækja sýna þær tugi rauðra risastjarna.

52
00:04:43,850 --> 00:04:47,480
Á liðnum árum hafa þessar stjörnur sést hreyfast!

53
00:04:47,480 --> 00:04:52,250
Þær hringasóla í kringum ósýnilegt fyrirbæri í hjarta vetrarbrautarinnar.

54
00:04:54,020 --> 00:04:59,650
Af hreyfingum þeirra að dæma hlýtur ósýnilega fyrirbærið að vera gríðarlega massamikið.

55
00:05:00,420 --> 00:05:06,980
Risavaxið svarthol, meira en 4,3 milljón sinnum massameira en sólin okkar.

56
00:05:07,710 --> 00:05:11,740
Stjörnufræðingar hafa meira að segja séð orkuríka blossa frá gasskýjum

57
00:05:11,740 --> 00:05:13,490
sem svartholið gleypir.

58
00:05:13,490 --> 00:05:18,440
Allt saman sjáanlegt með hjálp aðlögunarsjóntækja.

59
00:05:20,320 --> 00:05:25,030
Þunnir speglar og virk sjóntæki gera okkur kleift að smíða risasjónauka.

60
00:05:25,030 --> 00:05:28,030
Og aðlögunarsjóntækin sjá um ókyrrðina í lofthjúpnum

61
00:05:28,030 --> 00:05:31,410
og skila hnífskörpum myndum.

62
00:05:32,190 --> 00:05:34,240
En við eigum fleiri ása í erminni.

63
00:05:34,240 --> 00:05:38,420
Þriðja brellan er kölluð víxlmælingar.

64
00:05:41,060 --> 00:05:44,010
VLT samanstendur af fjórum sjónaukum.

65
00:05:44,010 --> 00:05:50,150
Saman geta þeir verkað sem 130 metra breiður sýndarsjónauki.

66
00:05:52,710 --> 00:05:58,330
Ljósi sem stakir sjónaukarnir safna er veitt í gegnum göng

67
00:05:58,330 --> 00:06:01,440
og safnað saman í rannsóknarstofu neðanjarðar.

68
00:06:03,200 --> 00:06:09,260
Hér er ljósið sameinað með leysimælingartækni og flóknu seinkunarkerfi.

69
00:06:14,140 --> 00:06:19,050
Heildarútkoman er samanlögð ljóssöfnunargeta fjögurra 8,2 metra spegla

70
00:06:19,050 --> 00:06:25,350
og haukfrán sjón ímyndaðs sjónauka á stærð við fimmtíu tennisvelli.

71
00:06:28,220 --> 00:06:31,990
Fjórir hjálparsjónaukar veita kerfinu meiri sveigjanleika.

72
00:06:31,990 --> 00:06:35,320
Þeir sýnast smáir við hlið risanna fjögurra.

73
00:06:35,320 --> 00:06:39,970
Samt hafa þeir 1,8 metra breiða spegla.

74
00:06:39,970 --> 00:06:45,560
Stærri en stærstu sjónaukar heims fyrir rétt rúmri öld!

75
00:06:47,280 --> 00:06:50,050
Víxlmælingar eru nokkurs konar kraftaverk.

76
00:06:50,050 --> 00:06:54,250
Stjörnuljósatöfrar í eyðimörkinni.

77
00:06:54,250 --> 00:06:58,250
Og niðurstöðurnar eru tilkomumiklar.

78
00:07:00,360 --> 00:07:04,830
Víxlmælir Very Large Telescope sýnir fimmtíu sinnum fínni smáatriði

79
00:07:04,830 --> 00:07:06,900
en Hubble geimsjónaukinn.

80
00:07:09,970 --> 00:07:14,200
Hann gaf okkur til dæmis nærmynd af vampírustjörnu.

81
00:07:16,160 --> 00:07:19,030
Stjörnu sem sýgur efni frá förunauti sínum.

82
00:07:23,670 --> 00:07:28,450
Óreglulegar hviður stjörnuryks hafa sést umhverfis Betelgás —

83
00:07:28,450 --> 00:07:32,410
risastjörnu sem er um það bil að springa.

84
00:07:34,750 --> 00:07:40,000
Og í rykskífum nýfæddra stjarna hafa stjörnufræðingar fundið ...

85
00:07:40,990 --> 00:07:44,350
... hráefnið í reikistjörnur framtíðinnar.

86
00:07:45,080 --> 00:07:50,690
Very Large Telescope er skarpasta auga mannkynsins.

87
00:07:51,380 --> 00:07:54,760
En stjörnufræðingar hafa aðrar leiðir til að víkka sjóndeildarhringinn

88
00:07:54,760 --> 00:07:56,870
og bæta útsýni sitt.

89
00:07:56,870 --> 00:07:59,700
Hjá Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli

90
00:07:59,700 --> 00:08:05,590
hafa þeir lært að sjá alheiminn í gerólíku ljósi.

91
00:08:10,250 --> 00:08:14,010
Þetta er Dr. J sem kveður fyrir hönd ESOcast.

92
00:08:14,010 --> 00:08:17,390
Fylgstu með nýjum stjarnfræðilegum ævintýrum í næsta þætti.

93
00:08:20,000 --> 00:08:21,290
ESOcast er framleitt af ESO

94
00:08:21,290 --> 00:08:23,470
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

95
00:08:23,470 --> 00:08:25,290
ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli

96
00:08:25,290 --> 00:08:27,470
eru fremstu fjölþjóðlegu stjarnvísindasamtök heims

97
00:08:27,470 --> 00:08:30,000
sem hannar, smíðar og starfrækir öflugustu stjörnustöðvar veraldar.

98
00:08:32,000 --> 00:08:39,000
Handrit: ESO; Þýðing: Sævar Helgi Bragason

99
00:08:51,530 --> 00:08:54,330
Nú þegar þú hefur séð það nýjasta frá ESO

100
00:08:56,260 --> 00:08:59,730
skaltu hverfa út í geiminn með Hubble.

101
00:09:02,400 --> 00:09:04,730
Í Hubblecast er fjallað um nýjustu uppgötvanir

102
00:09:04,730 --> 00:09:08,430
frægasta geimsjónauka í heiminum

103
00:09:11,020 --> 00:09:14,420
Hubble geimsjónauka NASA og ESA.

