﻿1
00:00:02,000 --> 00:00:04,000
Þetta er ESOcast!

2
00:00:04,000 --> 00:00:08,000
Vísindi í fremstu röð og lífið á bakvið tjöldin hjá ESO,

3
00:00:08,000 --> 00:00:10,000
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli,

4
00:00:11,000 --> 00:00:17,000
könnun á undrum alheimsins með þáttarstjórnandanum Dr J, sem einnig er þekktur sem Dr Joe Liske.

5
00:00:20,000 --> 00:00:23,000
Komið þið sæl og verið velkomin í þennan aukaþátt ESOcast.

6
00:00:24,000 --> 00:00:27,500
Í aðdragandi 50 ára afmælis ESO í október 2012

7
00:00:27,500 --> 00:00:30,000
munum við birta átta aukaþætti

8
00:00:30,000 --> 00:00:35,000
um fyrstu 50 árin í rannsóknum ESO á suðurhimninum.

9
00:00:39,000 --> 00:00:44,000
Horft til himins

10
00:00:46,000 --> 00:00:53,000
Fyrir 167.000 árum sprakk stjarna í lítilli vetrarbraut sem hringsólar um vetrarbrautina okkar.

11
00:00:56,000 --> 00:00:58,500
Á þeim tíma þegar stjarnan fjarlæga sprakk

12
00:00:58,500 --> 00:01:02,000
hafði maðurinn nýtekið sín fyrstu skref á sléttunni í Afríku.

13
00:01:05,000 --> 00:01:08,000
Enginn hefði getað tekið eftir flugeldasýningunni í geimnum

14
00:01:08,000 --> 00:01:13,000
því ljósgeislarnir voru nýlagðir af stað í langferð sína til jarðar.

15
00:01:15,000 --> 00:01:19,500
Þegar ljós sprengistjörnunnar hafði lagt að baki 98% af ferðalagi sínu

16
00:01:19,500 --> 00:01:24,500
voru grískir heimspekingar nýbyrjaðir að velta fyrir sér eðli alheimsins.

17
00:01:27,000 --> 00:01:29,000
Skömmu áður en ljósið náði til jarðar

18
00:01:29,000 --> 00:01:34,000
beindi Galíleó Galílei sínum fyrsta frumstæða sjónauka til himins.

19
00:01:38,000 --> 00:01:41,000
En þann 24. febrúar árið 1987

20
00:01:41,000 --> 00:01:45,500
þegar ljóseindum sprengingarinnar rigndi loks yfir reikistjörnuna okkar

21
00:01:45,500 --> 00:01:50,000
voru stjörnufræðingar tilbúnir að rannsaka sprengistjörnuna í smáatriðum.

22
00:01:52,000 --> 00:01:54,000
Sprengistjarnan 1987A

23
00:01:54,770 --> 00:01:56,460
blossaði upp á suðurhimninum —

24
00:01:56,460 --> 00:01:59,440
og sást því ekki frá Evrópu eða Bandarikjunum.

25
00:02:00,000 --> 00:02:04,000
Á þessum tíma hafði ESO smíðað sína fyrstu stóru sjónauka í Chile

26
00:02:04,000 --> 00:02:08,000
sem veitti stjörnufræðingum sæti í fremstu röð til að fylgjast með sjónarspilinu.

27
00:02:11,000 --> 00:02:13,500
Sjónaukinn er vitaskuld mikilvægasta tækið

28
00:02:13,500 --> 00:02:18,000
sem gerir okkur kleift að ráða fram úr leyndardómum alheimsins.

29
00:02:19,000 --> 00:02:23,000
Sjónaukar safna miklu meira ljósi en mannsaugað

30
00:02:23,000 --> 00:02:28,000
og sýna því daufari stjörnur og leyfa okkur að skyggnast dýpra út í geiminn.

31
00:02:30,000 --> 00:02:34,000
Þeir sýna líka fínni smáatriði, rétt eins og stækkunargler.

32
00:02:36,000 --> 00:02:40,000
Og er þeir eru búnir næmum myndavélum og litrófsritum

33
00:02:40,000 --> 00:02:45,000
veita þeir okkur miklar upplýsingar um reikistjörnur, stjörnur og vetrarbrautir.

34
00:02:52,000 --> 00:02:56,000
Fyrstu sjónaukar ESO á La Silla voru af ýmsum stærðum og gerðumi.

35
00:02:56,000 --> 00:02:59,000
Allt frá litlum þjóðarsjónaukum

36
00:02:59,000 --> 00:03:02,000
upp í stórar ljósmyndavélar og gleiðlinsur.

37
00:03:12,000 --> 00:03:16,000
2,2 metra sjónaukinn, sem nú er næstum 30 ára gamall,

38
00:03:17,000 --> 00:03:20,000
tekur enn glæsilegar myndir af alheiminum.

39
00:04:01,000 --> 00:04:03,000
Á hæsta tindi La Silla fjalls

40
00:04:03,000 --> 00:04:09,000
er að finna mesta afrek fyrstu starfsára ESO — 3,6 metra sjónaukann.

41
00:04:09,000 --> 00:04:14,000
Hann er 35 ára gamall en hefur öðlaðst nýtt líf í leit að fjarreikistjörnum.

42
00:04:16,000 --> 00:04:20,500
Sænskir stjörnufræðingar byggðu sömuleiðis 15 metra breitt loftnet

43
00:04:20,500 --> 00:04:25,000
til að rannsaka örbylgjur frá köldum geimskýjum.

44
00:04:26,000 --> 00:04:31,000
Saman hafa þessir sjónaukar hjálpað til við að afhjúpa alheiminn sem við búum í.

45
00:04:45,000 --> 00:04:49,000
Jörðin er aðeins ein af átta reikistjörnum í sólkerfinu.

46
00:04:55,000 --> 00:04:57,000
Frá hinum örsmáa Merkúríusi til risans Júpíters

47
00:04:57,000 --> 00:05:03,500
eru þessir berg- og gashnettir leifar frá myndun sólarinnar.

48
00:05:09,000 --> 00:05:14,000
Sólin er að sama skapi meðalstjarna í Vetrarbrautinni.

49
00:05:15,000 --> 00:05:20,000
Ein lítil ljóstýra innan um hundruð milljarða sambærilegra stjarna

50
00:05:20,000 --> 00:05:25,000
en líka útþanda rauða risa, samþjappaða hvíta dverga

51
00:05:25,000 --> 00:05:28,000
og nifteindastjörnur sem snúast geysihratt.

52
00:05:29,000 --> 00:05:34,000
Þyrilarmar Vetrarbrautarinnar eru stráðir glóandi geimþokum

53
00:05:34,000 --> 00:05:37,000
sem geta af sér bjartar þyrpingar nýfæddra stjarna

54
00:05:37,000 --> 00:05:42,000
á meðan svermur aldraðra kúluþyrpinga umlykur vetrarbrautina okkar.

55
00:05:47,000 --> 00:05:51,500
Og vetrarbrautin okkar er aðeins ein af óteljandi vetrarbrautum í hinum stóra alheimi

56
00:05:51,500 --> 00:05:57,000
sem hefur þanist út frá Miklahvelli í næstum fjórtán milljarða ára.

57
00:06:05,000 --> 00:06:10,000
Síðustu fimmtíu ár hefur ESO hjálpað til við að afhjúpa stöðu okkar í alheiminum.

58
00:06:10,000 --> 00:06:14,000
Og með því að horfa til himins höfum við líka áttað okkur á eigin uppruna.

59
00:06:14,500 --> 00:06:20,500
Við erum hluti af stórri alheimssögu. Án stjarna, værum við ekki hér.

60
00:06:24,000 --> 00:06:28,000
Í upphafi innihélt alheimurinn aðeins vetni og helíum, tvö léttustu frumefnin.

61
00:06:29,000 --> 00:06:34,000
En stjörnurnar eru kjarnaofnar sem umbreyta léttu frumefnunum í þyngri.

62
00:06:36,000 --> 00:06:40,000
Og sprengistjarna eins og 1987A

63
00:06:40,000 --> 00:06:44,000
sáir afurðum sínum um alheiminn.

64
00:06:47,000 --> 00:06:51,000
Þegar sólkerfið myndaðist fyrir um 4,6 milljörðum ára

65
00:06:51,000 --> 00:06:55,000
innihélt það þessi þungu frumefni í litlu magni.

66
00:06:55,000 --> 00:07:00,000
Málma og silíköt en líka kolefni og súrefni.

67
00:07:01,000 --> 00:07:06,000
Kolefnið í vöðvunum, járnið í blóðinu og kalsíumið í beinum okkar,

68
00:07:06,000 --> 00:07:09,000
urðu til í fyrri kynslóðum stjarna.

69
00:07:09,000 --> 00:07:13,000
Við erum bókstaflega himnesk.

70
00:07:14,000 --> 00:07:17,000
En ný svör leiða alltaf til nýrra spurninga.

71
00:07:17,000 --> 00:07:21,000
Því meira sem við lærum, því dýpri verða leyndardómarnir.

72
00:07:23,000 --> 00:07:27,000
Hver eru uppruni og örlög vetrarbrauta?

73
00:07:31,000 --> 00:07:36,000
Eru önnur sólkerfi þarna út og gæti líf þrifist á öðrum hnöttum?

74
00:07:43,000 --> 00:07:49,000
Hvað leynist djúpt í iðrum Vetrarbrautarinnar?

75
00:08:00,000 --> 00:08:04,000
Stjörnufræðingar þurftu augljóslega miklu öflugri sjónauka.

76
00:08:04,000 --> 00:08:07,000
Og ESO veitti þeim ný og byltingarkennd tæki.

77
00:08:16,000 --> 00:08:20,000
Þetta er Dr J. sem kveður fyrir hönd ESOcast.

78
00:08:20,000 --> 00:08:23,000
Fylgstu með nýjum stjarnfræðilegum ævintýrum í næsta þætti.

79
00:08:26,000 --> 00:08:28,000
ESOcast er framleitt af ESO,

80
00:08:28,000 --> 00:08:30,000
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

81
00:08:30,000 --> 00:08:31,000
ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli,

82
00:08:31,000 --> 00:08:33,000
eru fremstu fjölþjóðlegu stjarnvísindasamtök heims

83
00:08:33,000 --> 00:08:35,000
sem hannar, smíðar og starfrækir öflugustu stjörnustöðvar veraldar.

84
00:08:39,000 --> 00:08:45,000
Handrit ESO; þýðing Sævar Helgi Bragason

85
00:08:57,000 --> 00:09:00,000
Nú þegar þú hefur séð það nýjasta frá ESO

86
00:09:02,000 --> 00:09:06,000
skaltu hverfa út í geiminn með Hubble.

87
00:09:08,000 --> 00:09:10,000
Í Hubblecast er fjallað um nýjustu uppgötvanir

88
00:09:10,000 --> 00:09:14,000
frægasta geimsjónauka í heiminum,

89
00:09:17,000 --> 00:09:20,000
Hubble geimsjónauka NASA og ESA.

