﻿1
00:00:02,000 --> 00:00:04,000
Þetta er ESOcast!

2
00:00:04,000 --> 00:00:07,500
Vísindi í fremstu röð og lífið á bakvið tjöldin hjá ESO,

3
00:00:07,500 --> 00:00:10,000
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli,

4
00:00:10,000 --> 00:00:17,000
könnun á undrum alheimsins með þáttarstjórnandanum Dr. J, sem einnig er þekktur sem Dr. Joe Liske.

5
00:00:21,000 --> 00:00:23,000
Komið þið sæl og verið velkomin í þennan aukaþátt ESOcast.

6
00:00:23,000 --> 00:00:27,000
Í aðdraganda 50 ára afmælis ESO í október 2012

7
00:00:27,000 --> 00:00:31,000
munum við birta átta aukaþætti

8
00:00:31,000 --> 00:00:35,000
um fyrstu 50 árin í rannsóknum ESO á suðurhimninum.

9
00:00:40,000 --> 00:00:43,000
Þetta er ævintýraleg saga...

10
00:00:48,000 --> 00:00:53,000
Saga um forvitni, hugrekki og elju...

11
00:00:56,000 --> 00:01:01,000
Sagan af því hvernig Evrópa hélt suður á bóginn til að rannsaka stjörnurnar.

12
00:01:50,000 --> 00:01:54,000
Haldið suður á bóginn

13
00:01:55,000 --> 00:02:00,000
Velkomin til ESO, stjörnustöðvar Evrópulanda á suðurhveli.

14
00:02:03,000 --> 00:02:06,000
Fimmtíu ára gömul en líflegri en nokkru sinni fyrr.

15
00:02:12,000 --> 00:02:15,000
ESO er hlið Evrópu til stjarnanna. 

16
00:02:16,000 --> 00:02:19,000
Hér sameina stjörnufræðingar frá fimmtán löndum krafta sína

17
00:02:19,000 --> 00:02:21,000
til að ráða fram úr leyndardómum alheimsins.

18
00:02:22,500 --> 00:02:23,500
Hvernig?

19
00:02:23,500 --> 00:02:27,000
Með því að byggja stærstu sjónauka veraldar.

20
00:02:27,000 --> 00:02:29,000
Hanna næmar myndavélar og mælitæki.

21
00:02:30,000 --> 00:02:32,000
Grannskoða himininn.

22
00:02:34,000 --> 00:02:37,000
Í störfum sínum hafa þeir horft á nálæg og fjarlæg fyrirbæri

23
00:02:37,000 --> 00:02:40,000
allt frá halastjörnum á fleygiferð um sólkerfið,

24
00:02:40,000 --> 00:02:44,000
til fjarlægra vetrarbrauta við endimörk rúms og tíma,

25
00:02:44,000 --> 00:02:49,000
og veita okkur ferska sýn á alheiminn sem engin fordæmi eru fyrir.

26
00:03:20,500 --> 00:03:23,000
Leyndardómsfullan alheim.

27
00:03:24,000 --> 00:03:26,000
Og óhemju fagran.

28
00:03:27,500 --> 00:03:29,500
Frá afskekktum fjallstindum í Chile,

29
00:03:29,500 --> 00:03:32,000
teygja evrópskir stjörnufræðingar sig til stjarnanna.

30
00:03:32,500 --> 00:03:33,500
En hvers vegna Chile?

31
00:03:34,000 --> 00:03:37,000
Hvers vegna héldu stjörnufræðingar í suðurátt?

32
00:03:41,000 --> 00:03:45,000
Höfuðstöðvar Stjörnustöðvar Evrópulanda á suðurhveli eru í Garching í Þýskalandi.

33
00:03:49,000 --> 00:03:53,000
En frá Evrópu sést aðeins hluti himinsins. 

34
00:03:53,000 --> 00:03:57,000
Til að fylla í eyðurnar þarf að halda suður á bóginn.

35
00:04:06,000 --> 00:04:10,000
Um aldir voru kort af suðurhimninum að miklu leyti auð — 

36
00:04:10,000 --> 00:04:13,000
ókannaðar lendur himinsins.

37
00:04:15,000 --> 00:04:16,500
1595.

38
00:04:17,000 --> 00:04:21,000
Í fyrsta sinn lögðu hollensk kaupskip úr vör og sigldu til Austur-Indía.

39
00:04:27,000 --> 00:04:31,000
Á næturnar mældu siglingafræðingarnir Pieter Keyser og Frederik de Houtman

40
00:04:31,330 --> 00:04:36,390
staðsetningar meira en 130 stjarna á suðurhimninum.

41
00:04:43,000 --> 00:04:48,000
Fljótlega sýndu hnattlíkön og kort tólf ný stjörnumerki

42
00:04:48,000 --> 00:04:52,000
sem enginn Evrópumaður hafði séð áður.

43
00:04:54,000 --> 00:04:58,000
Bretar voru fyrstir til að koma upp varanlegri stjörnustöð

44
00:04:58,000 --> 00:04:59,000
á suðurhveli jarðar.

45
00:05:00,000 --> 00:05:05,000
Konunglega stjörnustöðin á Góðrarvonarhöfða var sett á laggirnar árið 1820.

46
00:05:06,000 --> 00:05:10,500
Skömu síðar kom John Herschel upp sinni eigin stjörnustöð

47
00:05:10,500 --> 00:05:13,000
nálægt hinu fræga Borðfjalli í Suður Afríku.

48
00:05:16,000 --> 00:05:17,000
Hvílíkt útsýni!

49
00:05:17,000 --> 00:05:22,000
Dimmur himinn. Bjartar þyrpingar og stjörnuský hátt á lofti.

50
00:05:24,000 --> 00:05:27,000
Engin furða að stjörnustöðvar Harvard, Yale og Leiden

51
00:05:27,000 --> 00:05:31,000
fylgdu í kjölfarið með sínar eigin stjörnustöðvar á suðurhveli.

52
00:05:31,000 --> 00:05:34,000
En könnun suðurhiminsins

53
00:05:34,000 --> 00:05:38,000
krafðist hugrekkis, ástríðu og elju.

54
00:05:43,000 --> 00:05:45,500
Þar til fyrir fimmtíu árum

55
00:05:45,500 --> 00:05:50,000
voru næstum allir stórir stjörnusjónaukar heims norðan miðbaugs.

56
00:05:51,000 --> 00:05:53,000
Hvers vegna er suðurhimininn svona mikilvægur?

57
00:05:55,000 --> 00:05:59,000
Í fyrsta lagi var hann að mestu ókannaður.

58
00:05:59,500 --> 00:06:02,000
Allur himininn sést einfaldlega ekki frá Evrópu.

59
00:06:03,000 --> 00:06:07,000
Miðja okkar vetrarbrautar er gott dæmi.

60
00:06:07,000 --> 00:06:10,000
Hún sést varla frá norðurhveli jarðar

61
00:06:10,000 --> 00:06:12,000
en frá suðurhvelinu er hún hátt á lofti.

62
00:06:14,000 --> 00:06:16,000
Að ógleymdum Magellansskýjunum —

63
00:06:16,280 --> 00:06:19,600
tveimur litlum fylgivetrarbrautum okkar vetrarbrautar.

64
00:06:20,500 --> 00:06:25,000
Þær sjást ekki frá norðurhveli en eru mjög áberandi sunnan miðbaugs.

65
00:06:26,000 --> 00:06:27,000
Og að lokum

66
00:06:27,000 --> 00:06:31,300
plagaði ljósmengun og óhagstætt veður evrópska stjörnufræðinga.

67
00:06:32,000 --> 00:06:34,500
Að halda suður á bóginn myndi leysa flest vandamál þeirra.

68
00:06:38,000 --> 00:06:42,000
Bátsferð í Hollandi í júní 1953.

69
00:06:42,000 --> 00:06:44,500
Hér á IJsselmeer

70
00:06:44,500 --> 00:06:47,500
sögðu þýsk-bandaríski stjörnufræðingurinn Walter Baade

71
00:06:47,500 --> 00:06:50,000
og hollenski stjörnufræðingurinn Jan Oort

72
00:06:50,000 --> 00:06:53,000
samstarfsfélögum sínum frá áætlunum um evrópska stjörnustöð

73
00:06:53,000 --> 00:06:55,000
á suðurhveli jarðar.

74
00:07:00,000 --> 00:07:04,500
Ekkert Evrópuríki gat keppt eitt og óstutt við Bandaríkin

75
00:07:04,500 --> 00:07:06,500
en í samstarfi væri það mögulegt.

76
00:07:07,000 --> 00:07:12,000
Sjö mánuðum seinna komu tólf stjörnufræðingar frá sex löndum saman hér 

77
00:07:12,000 --> 00:07:14,500
í hinu virðulega þingherbergi Leidenháskóla.

78
00:07:14,500 --> 00:07:17,000
Þeir undirrituðu yfirlýsingu

79
00:07:17,000 --> 00:07:22,000
og sögðu frá ósk sinni um að setja á laggirnar evrópska stjörnustöð í Suður Afríku.

80
00:07:23,000 --> 00:07:25,000
Þetta ruddi brautina fyrir stofnun ESO.

81
00:07:26,000 --> 00:07:29,000
En bíðum við!... Suður Afríka?

82
00:07:30,000 --> 00:07:31,500
Að vissu leyti var það skiljanlegt.

83
00:07:31,500 --> 00:07:37,000
Í Suður Afríku var þegar Höfðastjörnustöðin og eftir árið 1909

84
00:07:37,000 --> 00:07:40,000
Transvaal-stjörnustöðin í Jóhannesarborg.

85
00:07:40,000 --> 00:07:44,500
Stjörnustöð Leiden hafði sína eigin stöð á suðurhveli í Hartebeespoort.

86
00:07:47,000 --> 00:07:49,000
Árið 1955

87
00:07:49,000 --> 00:07:54,500
komu stjörnufræðingar upp búnaði til að finna besta staðinn undir stóran sjónauka.

88
00:07:54,500 --> 00:08:01,000
Zeekoegat í Karoo eyðimörkinni. Eða Tafelkopje í Bloemfontein.

89
00:08:02,000 --> 00:08:05,000
En veðrið var alls ekki hagstætt.

90
00:08:06,000 --> 00:08:12,000
Í kringum 1960 var sjónum beint að hrikalegu landslagi norðurhluta Chile.

91
00:08:13,000 --> 00:08:16,000
Hér höfðu bandarískir stjörnufræðingar líka hug á

92
00:08:16,000 --> 00:08:18,500
að koma upp eigin stjörnustöð á suðurhveli

93
00:08:18,500 --> 00:08:25,000
Í erfiðum hestaleiðangrum kom í ljós að aðstæður voru miklu betri en í Suður Afríku.

94
00:08:26,000 --> 00:08:30,000
Árið 1963 var ákvörðun tekin. Chile skyldi það vera.

95
00:08:30,000 --> 00:08:33,000
Sex mánuðum seinna var La Silla fjall valið

96
00:08:33,000 --> 00:08:36,000
sem framtíðarstaðsetning Stjörnustöðvar Evrópulanda á suðurhveli.

97
00:08:36,000 --> 00:08:40,000
ESO var ekki lengur fjarlægur draumur.

98
00:08:41,000 --> 00:08:47,500
Að lokum undirrituðu fimm Evrópuríki ESO sáttmálann þann 5. október 1962 

99
00:08:47,500 --> 00:08:53,000
sem er opinber afmælisdagur Stjörnustöðvar Evrópulanda á suðurhveli.

100
00:08:53,000 --> 00:08:56,500
Belgía, Þýskaland, Frakkland, Holland og Svíþjóð

101
00:08:56,500 --> 00:09:01,000
voru staðráðin í að stefna í sameiningu til stjarnanna á suðurhveli.

102
00:09:03,000 --> 00:09:07,000
La Silla og nágrenni var keypt af Chileska ríkinu. 

103
00:09:08,000 --> 00:09:10,000
Vegur var lagður úti í óbyggðum.

104
00:09:11,000 --> 00:09:16,500
Fyrsti sjónauki ESO tók á sig mynd í stálsmiðju í Rotterdam

105
00:09:18,000 --> 00:09:21,000
Og í desember 1966

106
00:09:21,000 --> 00:09:26,000
opnaði Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli fyrsta auga sitt.

107
00:09:26,000 --> 00:09:32,000
Evrópa hafði lagt í mikla vegferð til að uppgötva alheiminn.

108
00:09:37,000 --> 00:09:40,500
Þetta er Dr. J sem kveður fyrir hönd ESOcast.

109
00:09:41,000 --> 00:09:44,000
Fylgstu aftur með nýjum stjarnfræðilegum ævintýrum í næsta þætti.

110
00:09:47,000 --> 00:09:48,500
ESOcast er framleitt af ESO,

111
00:09:48,500 --> 00:09:50,000
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

112
00:09:51,000 --> 00:09:52,000
ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli,

113
00:09:52,000 --> 00:09:54,000
eru fremstu fjölþjóðlegu stjarnvísindasamtök heims

114
00:09:54,000 --> 00:09:56,000
sem hannar, smíðar og starfrækir öflugustu stjörnustöðvar veraldar.

115
00:09:59,000 --> 00:10:05,000
Handrit: ESO; þýðing: Sævar Helgi Bragason

116
00:10:18,000 --> 00:10:21,000
Nú þegar þú hefur fylgst með því nýjasta frá ESO

117
00:10:23,000 --> 00:10:27,000
skaltu hverfa út í geim með Hubble.

118
00:10:29,000 --> 00:10:32,000
Í Hubblecast er fjallað um nýjust uppgötvanir

119
00:10:32,000 --> 00:10:36,000
frægasta geimsjónauka í heimi,

120
00:10:37,500 --> 00:10:42,000
Hubble geimsjónauka NASA og ESA.

