﻿1
00:00:05,670 --> 00:00:10,430
Undanfarna tvo áratugi hafa stjörnufræðingar gert byltingarkennda uppgötvun:

2
00:00:10,430 --> 00:00:16,149
Alheimurinn er ekki aðeins að þenjast út heldur þenst hann út með sívaxandi hraða.

3
00:00:16,149 --> 00:00:19,410
Fyrir þessa uppgötvun á auknum útþensluhraða alheims

4
00:00:19,410 --> 00:00:24,500
voru Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði árið 2011 veitt.

5
00:00:29,070 --> 00:00:30,700
Þetta er ESOcast!

6
00:00:30,700 --> 00:00:33,630
Vísindi í fremstu röð og lífið á bakvið tjöldin hjá ESO

7
00:00:33,630 --> 00:00:35,620
European Southern Observatory,

8
00:00:35,620 --> 00:00:42,640
könnun á undrum alheimsins með þáttarstjórnandanum Dr. J, sem einnig er þekktur sem Dr. Joe Liske

9
00:00:46,500 --> 00:00:47,920
Komið þið sæl og verið velkomin í ESOcast. 

10
00:00:47,920 --> 00:00:49,510
Í þessum þætti

11
00:00:49,510 --> 00:00:51,500
munum við skoða hvernig stjörnufræðingar hafa komist að því

12
00:00:51,640 --> 00:00:54,920
að útþensla alheimsins fer sívaxandi

13
00:00:55,260 --> 00:01:00,090
og hvers vegna sú uppgötvun er ekki aðeins mikilvæg fyrir skilning okkar á alheiminum,

14
00:01:00,090 --> 00:01:02,360
heldur fyrir eðlisfræðina í heild sinni.

15
00:01:02,360 --> 00:01:07,690
Fyrir þessa tímamótauppgötvun voru Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði veitt árið 2011

16
00:01:07,690 --> 00:01:09,890
og mælingar með sjónaukum ESO í Chile

17
00:01:09,890 --> 00:01:13,310
léku þar veigamikið hlutverk.

18
00:01:19,650 --> 00:01:24,940
Alheimurinn sem við búum í varð til í Miklahvelli fyrir um 13,7 milljörðum ára.

19
00:01:26,000 --> 00:01:28,840
Æ síðan hefur alheimurinn þanist út.

20
00:01:28,840 --> 00:01:30,190
Og um árabil hafa stjörnufræðingar

21
00:01:30,190 --> 00:01:34,130
viljað vita meira um eðli útþenslunnar.

22
00:01:34,130 --> 00:01:37,430
Lengi vel voru tvær meginhugmyndir á lofti:

23
00:01:37,430 --> 00:01:42,400
Annað hvort hægði útþenslan smám saman á sér og stöðvaðist að lokum

24
00:01:42,400 --> 00:01:46,770
og síðan félli alheimurinn saman á ný í átt að „Miklahruni“.

25
00:01:47,770 --> 00:01:50,680
Eða kannski þendist alheimurinn út að eilífu.

26
00:01:53,380 --> 00:01:54,850
En hvernig gætu stjörnufræðingar fundið út 

27
00:01:54,850 --> 00:01:58,250
hvor hugmyndin væri rétt?

28
00:01:58,250 --> 00:02:00,950
Einfaldasta leiðin til þess

29
00:02:00,950 --> 00:02:04,920
er að mæla nákvæmlega fjarlægðir til mjög fjarlægra vetrarbrauta

30
00:02:04,920 --> 00:02:09,130
og bera mælingarnar síðan saman við spár beggja hugmynda

31
00:02:09,130 --> 00:02:11,000
um þessar tilteknu vetrarbrautir.

32
00:02:11,000 --> 00:02:15,000
Samanburðurinn á mælingum og spánum segði okkur til um

33
00:02:15,000 --> 00:02:17,250
hvor hugmyndin er rétt.

34
00:02:17,250 --> 00:02:18,930
En hvernig virkar þetta?

35
00:02:18,930 --> 00:02:24,200
Hvernig geta stjörnufræðingar mælt nákvæmlega slíkar órafjarlægðir í geimnum?

36
00:02:24,200 --> 00:02:29,320
Þar leika sprengistjörnur lykilhlutverk.

37
00:02:34,250 --> 00:02:38,760
Sprengistjörnur eru sjaldséð stjarnfræðileg fyrirbæri.

38
00:02:39,330 --> 00:02:43,300
Til er ákveðin tegund sprengistjörnu sem kallast gerð Ia

39
00:02:43,300 --> 00:02:47,130
sem hentar ákaflega vel til fjarlægðamælinga í geimnum.

40
00:02:49,160 --> 00:02:50,800
Þessar sprengistjörnur eru mjög bjartar

41
00:02:50,800 --> 00:02:54,540
sem þýðir að þær sjást jafnvel í mjög fjarlægum vetrarbrautum.

42
00:02:54,540 --> 00:02:58,210
Og það sem meira er, er reyndarbirta þeirra alltaf sú sama

43
00:02:58,610 --> 00:03:00,500
svo hægt er að reikna út fjarlægðirnar til þeirra

44
00:03:00,540 --> 00:03:02,970
út frá því hversu bjartar þær sýnast frá jörðinni.

45
00:03:05,690 --> 00:03:08,800
Í kringum 1990 hófu tveir aðskildir rannsóknarhópar

46
00:03:08,800 --> 00:03:12,230
að gera nákvæmar mælingar á þessum sprengistjörnum.

47
00:03:12,230 --> 00:03:13,350
Í mælingar sínar

48
00:03:13,350 --> 00:03:18,480
notuðu stjörnufræðingar til dæmis sjónauka ESO í La Silla stjörnustöðinni í Chile.

49
00:03:20,040 --> 00:03:23,270
Um miðjan tíunda áratuginn voru mælingar á fjarlægum sprengistjörnum

50
00:03:23,270 --> 00:03:26,290
mjög erfiðar en líka mjög spennandi.

51
00:03:26,290 --> 00:03:30,810
Við hjá ESO notuðum 3,6 metra, NTT og 1,5 metra sjónaukana

52
00:03:30,810 --> 00:03:33,600
til að mæla sprengistjörnur með hátt rauðvik

53
00:03:33,600 --> 00:03:36,530
sem höfðu fundist með sjónauka í Tololo stjörnustöðinni sem er skammt frá.

54
00:03:36,670 --> 00:03:39,100
Í þá daga, fyrir 15 árum síðan,

55
00:03:39,100 --> 00:03:42,000
töldum við bókstaflega hverja einustu ljóseind

56
00:03:42,000 --> 00:03:45,770
sem er skemmtileg tilraun að taka þátt í einmitt vegna þess hve hún var krefjandi.

57
00:03:46,300 --> 00:03:49,660
Í þessu sambandi er mikilvægt að átta sig á

58
00:03:49,660 --> 00:03:52,430
að við ætluðum okkur alls ekkert að komast að sívaxandi útþenslu alheimsins

59
00:03:52,430 --> 00:03:56,050
en að fylgjast með nýrri heimsmynd eðlisfræðinnar verða til

60
00:03:56,050 --> 00:03:59,790
hefur að sjálfsögðu verið mjög áhugavert og stórskemmtilegt.

61
00:04:01,700 --> 00:04:04,460
Um leið og við sáum að sprengistjörnurnar voru of langt í burtu

62
00:04:04,460 --> 00:04:07,970
miðað við alheim þar sem þyngdarkrafturinn réði ríkjum

63
00:04:07,970 --> 00:04:10,170
urðum við að gera mælingarnar aftur.

64
00:04:10,170 --> 00:04:13,770
Sú aukna útþensluhröðun sem við mældum með fyrsta sprengistjörnuúrtakinu

65
00:04:13,770 --> 00:04:18,500
leiddi fljótt til nýrrar stærðar í heimsfræði:

66
00:04:18,500 --> 00:04:19,649
Hulduorku.

67
00:04:19,649 --> 00:04:21,430
Við urðum að staðfesta þá niðurstöðu.

68
00:04:21,430 --> 00:04:26,750
Við óskuðum þá eftir tíma í VLT eins og aðrir hópar

69
00:04:29,000 --> 00:04:33,020
til að staðfesta mælingar okkar með betri gögnum frá stærri sjónauka

70
00:04:33,020 --> 00:04:36,780
og til að fá betra úrtak af sprengistjörnum.

71
00:04:38,620 --> 00:04:41,350
Þessi uppgötvun á auknum útþensluhraða alheimsins

72
00:04:41,350 --> 00:04:45,450
er ein sú óvæntasta og mikilvægasta sem gerð hefur verið síðustu áratugi.

73
00:04:45,450 --> 00:04:49,210
Hún var mjög óvænt því fram til þessa

74
00:04:49,210 --> 00:04:53,940
trúðu allir að útþensla alheimsins hlyti að hægja á sér

75
00:04:53,940 --> 00:04:58,500
vegna þyngdartogs alls efnis í alheiminum.

76
00:04:59,000 --> 00:05:03,530
En í ljós kom að alheimurinn er miklu áhugaverðari en svo.

77
00:05:03,530 --> 00:05:06,880
En hvers vegna er þessi aukna útþensla svona mikilvæg?

78
00:05:06,880 --> 00:05:12,450
Vegna þess að tvær mögulegar skýringar eru á aukinni útþenslu:

79
00:05:12,450 --> 00:05:14,820
Fyrri útskýringin er sú

80
00:05:14,820 --> 00:05:20,890
að nærri 3/4 hlutar alheims samanstandi af þessari dularfullu hulduorku.

81
00:05:20,890 --> 00:05:25,500
Hulduorka er dularfull vegna þess að hún veitir neikvæðan þrýsting.

82
00:05:25,700 --> 00:05:27,960
Býsna furðulegt.

83
00:05:27,960 --> 00:05:30,500
Hin skýringin er sú

84
00:05:30,500 --> 00:05:33,320
að eitthvað amar að skilningi okkar á þyngdarkraftinum.

85
00:05:33,320 --> 00:05:38,940
Með öðrum orðum er almenna afstæðiskenning Einsteins kannski ekki alveg kórrétt.

86
00:05:38,940 --> 00:05:40,820
Hver sú sem skýringin er

87
00:05:40,820 --> 00:05:43,800
stöndum við andspænis glænýrri eðlisfræði

88
00:05:43,800 --> 00:05:46,800
og þess vegna er þetta svona mikilvægt

89
00:05:46,800 --> 00:05:51,710
og ástæða þess að uppgötvunin hlaut Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði árið 2011.

90
00:05:51,710 --> 00:05:55,130
Þetta er Dr. J sem kveður fyrir hönd ESOcast.

91
00:05:55,130 --> 00:05:58,610
Fylgstu aftur með nýjum stjarnfræðilegum ævintýrum í næsta þætti.

92
00:06:00,790 --> 00:06:04,000
ESOcast er framleitt af ESO, European Southern Observatory.

93
00:06:04,530 --> 00:06:05,500
ESO, European Southern Observatory,

94
00:06:05,500 --> 00:06:08,000
eru fremstu fjölþjóðlegu stjarnvísindasamtök heims

95
00:06:08,000 --> 00:06:10,500
sem hannar, smíðar og starfrækir öflugustu stjörnustöðvar veraldar.

96
00:06:13,000 --> 00:06:18,140
Handrit: ESO; þýðing: Sævar Helgi Bragason

97
00:06:29,700 --> 00:06:32,500
Nú þegar þú hefur fylgst með því nýjasta frá ESO

98
00:06:34,000 --> 00:06:38,000
skaltu hverfa út í geim með Hubble.

99
00:06:40,780 --> 00:06:42,660
Í Hubblecast er fjallað um nýjust uppgötvanir

100
00:06:42,660 --> 00:06:46,860
frægasta geimsjónauka í heimi,

101
00:06:49,640 --> 00:06:53,050
Hubble geimsjónauka NASA og ESA.

