﻿1
00:00:04,000 --> 00:00:09,000
Stjörnufræðingar sem notuðu Atacama Large Millimeter/submillimeter Array (ALMA)

2
00:00:10,000 --> 00:00:13,000
hafa náð mynd af svæði í kringum unga stjörnu

3
00:00:13,000 --> 00:00:16,000
þar sem rykagnir geta vaxið með því að límast saman.

4
00:00:16,000 --> 00:00:20,000
Þetta er í fyrsta sinn sem slík rykgildra hefur fundist.

5
00:00:20,000 --> 00:00:25,000
Uppgötvunin leysir gamalt vandamál um vöxt rykagna efnisskífum stjarna

6
00:00:25,000 --> 00:00:29,000
svo þær geti að lokum myndað halastjörnur,

7
00:00:29,000 --> 00:00:33,000
reikistjörnur og aðra berghnetti.

8
00:00:37,000 --> 00:00:43,000
Þetta er ESOcast! Vísindi í fremstu röð og lífið á bak við tjöldin

9
00:00:43,000 --> 00:00:47,000
hjá ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

10
00:00:57,000 --> 00:01:02,000
Í dag vita stjörnufræðingar að önnur sólkerfi eru algeng.

11
00:01:02,000 --> 00:01:05,000
Enn er þó margt á huldu um myndun reikistjarna,

12
00:01:05,000 --> 00:01:08,000
halastjarna og smástirna.

13
00:01:10,000 --> 00:01:14,000
Nýjar mælingar ALMA sjónaukans hafa nú hjálpað stjörnufræðingum

14
00:01:14,000 --> 00:01:18,000
að svara einni stærstu spurningunni: Hvernig vaxa örsmáu rykagnirnar

15
00:01:18,000 --> 00:01:22,000
í kringum ungar stjörnur — fyrst í smásteina

16
00:01:22,000 --> 00:01:27,000
og síðan í hnullunga sem eru meira en metri að stærð?

17
00:01:29,000 --> 00:01:32,000
Tölvulíkön benda til að rykagnir vaxi með því

18
00:01:32,000 --> 00:01:37,000
að rekast og límast saman. Þegar stærri agnirnar rekast saman aftur

19
00:01:37,000 --> 00:01:42,000
á miklum hraða, sundrast þær gjarnan og eru þá komnar aftur á byrjunarreit.

20
00:01:42,000 --> 00:01:46,000
Tölvulíkön sýna að jafnvel þótt þau tvístrist ekki, hægja stærri agnir

21
00:01:46,000 --> 00:01:50,000
á sér vegna núnings milli ryksins og gassins

22
00:01:50,000 --> 00:01:54,000
og falla að lokum inn í stjörnuna og geta þá ekki vaxið frekar.

23
00:01:55,000 --> 00:01:58,000
Agnirnar þurfa einhvers konar skjól þar sem þær geta haldið áfram

24
00:01:58,000 --> 00:02:02,000
að vaxa uns þær eru orðnar nógu stórar til að komast af á eigin spýtur.

25
00:02:02,000 --> 00:02:08,000
Stungið hefur verið upp á slíkum rykgildrum en þær hafa aldrei sést fyrr en nú

26
00:02:12,000 --> 00:02:17,000
Stjörnufræðingar notuðu ALMA til að rannsaka efnisskífu

27
00:02:17,000 --> 00:02:21,000
í kerfi sem kallast Oph-IRS 48.

28
00:02:21,000 --> 00:02:24,000
Þetta kerfi er umlukið hring úr gasi sem hefur holu í miðjunni

29
00:02:24,000 --> 00:02:29,000
sem má líklega rekja til óséðrar reikistjörnu eða fylgistjörnu.

30
00:02:29,000 --> 00:02:34,000
Eldri mælingar Very Large Telescope ESO sýndu að

31
00:02:34,000 --> 00:02:39,000
smærri rykagnir mynduðu líka hring. En nýju myndir ALMA

32
00:02:39,000 --> 00:02:45,000
sýndu að stærri rykagnirnar gerðu nokkuð annað.

33
00:02:45,000 --> 00:02:48,000
Í stað hrings sem búist var við, kom í ljós

34
00:02:48,000 --> 00:02:51,000
mjög áberandi kasjúhnetuform.

35
00:02:53,000 --> 00:02:57,000
Þetta er rykgildran, svæði þar sem stærri rykagnir festast

36
00:02:57,000 --> 00:03:01,000
og geta orðið miklu stærri með því að rekast og límast saman.

37
00:03:02,000 --> 00:03:07,000
Mælingarnar benda líka til að halastjörnuverksmiðja hafi fundist

38
00:03:07,000 --> 00:03:10,000
því agnirnar í rykgildrunni geta vaxið

39
00:03:10,000 --> 00:03:13,000
og orðið á stærð við halastjörnur, nokkrir kílómetrar í þvermál.

40
00:03:14,000 --> 00:03:17,000
Í þessari fjarlægð frá stjörnunni

41
00:03:17,000 --> 00:03:20,000
er rykið hins vegar ekki líklegt til að mynda reikistjörnur í fullri stærð.

42
00:03:24,000 --> 00:03:28,000
Innan tíðar mun óviðjafnanleg næmni og skerpa ALMA

43
00:03:28,000 --> 00:03:33,000
gera mönnum kleift að finna rykgildrur sem eru mun nær móðurstjörnunum.

44
00:03:33,000 --> 00:03:36,000
Slíkar rykgildrur gætu verið vöggur

45
00:03:36,000 --> 00:03:39,000
nýfæddra reikistjarna.

46
00:03:43,000 --> 00:03:46,000
ESOcast er framleitt af ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

47
00:03:47,000 --> 00:03:50,000
Fjölþjóðlega stjörnustöðin Atacama Large Millimeter/submillimeter Array (ALMA) er samstarfsverkefni Evrópu, Norður Ameríku og austur Asíu í samvinnu við Chile.

48
00:03:50,000 --> 00:03:53,000
ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli, er fremsta fjölþjóðlega stjörnustöð heims sem hannar, smíðar og starfrækir öflugustu stjörnusjónauka á Jörðinni.

