﻿1
00:00:04,000 --> 00:00:09,000
Þetta er ESOcast! Vísindi í fremstu röð og lífið

2
00:00:09,000 --> 00:00:15,000
á bak við tjöldin hjá ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

3
00:00:29,000 --> 00:00:35,000
Þann 25. maí 1998, var fyrsti af VLT sjónaukunum fjórum tekinn í notkun.

4
00:00:36,000 --> 00:00:40,000
Á þeim 15 árum sem liðin eru hefur Very Large Telescope kannað alheiminn

5
00:00:41,000 --> 00:00:45,000
í meiri smáatriðum en nokkru sinni fyrr. Hér eru nokkrar af eftirlætis myndunum okkar.

6
00:00:46,000 --> 00:00:50,000
Þessi glæsilega mynd af stórri þyrilvetrarbraut var tekin 21. september 1998.

7
00:00:50,000 --> 00:00:53,000
Hún er ein af fyrstu myndum VLT.

8
00:00:54,000 --> 00:00:57,000
Þessi innrauða mynd af stjörnumyndunarsvæði sýndi fram á að lágmassastjörnur eins og sólin

9
00:00:57,000 --> 00:01:00,000
geta myndast í öflugum stjörnumyndunarhrinum.

10
00:01:01,000 --> 00:01:07,000
Fræg þyrilvetrarbraut sem líkist Mexíkóahatti og skýrir nafngiftina.

11
00:01:08,000 --> 00:01:14,000
Þessi mynd í innrauðu/sýnilegu ljósi sýnir það sem er falið á bak við þykkt rykský.

12
00:01:16,000 --> 00:01:19,000
Samsetning 81 ljósmyndar VLT af Sverðþokunni í Óríon,

13
00:01:19,000 --> 00:01:22,000
tilþrifamiklu og nálægu stjörnumyndunarsvæði.

14
00:01:23,000 --> 00:01:26,000
VLT skyggndist inn í „Stólpa sköpunarinnar“

15
00:01:26,000 --> 00:01:29,000
með innrauða mælitækinu ISAAC.

16
00:01:30,000 --> 00:01:34,000
Kenjótt skuggaþoka mynduð úr gasi og ryki sem er að hrynja saman

17
00:01:34,000 --> 00:01:37,000
og er lýst upp af nálægri stjörnu.

18
00:01:38,000 --> 00:01:44,000
Ein skarpasta mynd sem tekin hefur verið frá Jörðinni af Satúrnusi.

19
00:01:44,000 --> 00:01:48,000
Dularfull þoka, mótuð af sterkri geislun

20
00:01:48,000 --> 00:01:52,000
frá einni heitustu stjörnu sem vitað er um.

21
00:01:53,000 --> 00:01:56,000
Fullkomin þyrilvetrarbraut

22
00:01:56,000 --> 00:01:59,000
með vel afmarkaðann bjálka í miðjunni og langa þyrilarma.

23
00:02:00,000 --> 00:02:03,000
VLT tók fyrstu myndina af reikistjörnu fyrir utan sólkerfið okkar.

24
00:02:03,000 --> 00:02:06,000
Rauði bletturinn er reikistjarna á braut um brúnan dverg.

25
00:02:08,000 --> 00:02:14,000
Smáatriði í þyrilvetrarbraut með haukfránni sjón VLT.

26
00:02:15,000 --> 00:02:18,000
Mjög virk stjörnumyndunarvetrarbraut.

27
00:02:18,000 --> 00:02:21,000
Hvítu blettirnir í hringnum eru stjörnumyndunarsvæði.

28
00:02:23,000 --> 00:02:26,000
Dularfull vetrarbraut sem gæti hafa gleypt smærri nágranna sinn.

29
00:02:26,000 --> 00:02:29,000
Mörg þúsund nýjar stjörnur myndast innan í henni.

30
00:02:30,000 --> 00:02:36,000
Þessi „fugl“ í geimnum er afleiðing samruna þriggja vetrarbrauta.

31
00:02:38,000 --> 00:02:41,000
Djúpmynd VLT af litlu og fjarlægu svæði í alheiminum

32
00:02:41,000 --> 00:02:44,000
er eins og að kafa ofan í sundlaug sem er full af litríkum mynstrum.

33
00:02:45,000 --> 00:02:48,000
Þökk sé VLT hafa stjörnufræðingar opinberað leyndardóma risasvartholsins

34
00:02:48,000 --> 00:02:52,000
sem lúrir í miðju Vetrarbrautarinnar.

35
00:02:52,000 --> 00:02:55,000
Stjarna 100 sinnum stærri en sólin

36
00:02:55,000 --> 00:02:58,000
sést á þessari hnífskörpu mynd frá VLT víxlmælinum.

37
00:02:59,000 --> 00:03:02,000
Falleg stjörnuþyrping ljósmynduð á örfáum sekúndum

38
00:03:02,000 --> 00:03:05,000
þökk sé stórum safnspegli VLT.

39
00:03:07,000 --> 00:03:13,000
Verksmiðja sem myndar ört stjörnur úr gas- og rykskýjum.

40
00:03:15,000 --> 00:03:18,000
Risavaxið stjörnumyndunarsvæði þar sem gas- og rykský

41
00:03:18,000 --> 00:03:21,000
lýsast upp af orkuríkri geislun frá heitum, ungum stjörnum.

42
00:03:22,000 --> 00:03:25,000
Risaárekstur nokkurra vetrarbrautaþyrpinga

43
00:03:25,000 --> 00:03:28,000
þar sem alls kyns furðufyrirbæri koma fram.

44
00:03:29,000 --> 00:03:32,000
Stjörnuvindar frá ungum stjörnum móta tignarleg mynstur

45
00:03:32,000 --> 00:03:35,000
í gas- og rykskýjunum sem þær fæddust í.

46
00:03:36,000 --> 00:03:39,000
Vetrarbrautapar í 50 milljón ljósára fjarlægð.

47
00:03:39,000 --> 00:03:42,000
Þær sýnast nálægt hver annarri en 100.000 ljósár skilja á milli.

48
00:03:44,000 --> 00:03:47,000
Á þessari mynd sést miðja stjörnumyndunarsvæðis

49
00:03:47,000 --> 00:03:50,000
í ótrúlegum smáatriðum.

50
00:03:50,000 --> 00:03:53,000
Þessi hnífskarpa innrauða ljósmynd VLT gerði stjörnufræðingum kleift

51
00:03:53,000 --> 00:03:57,000
að finna mörg óþekkt fyrirbæri í einu nálægasta stjörnumyndunarsvæðinu við Jörðina.

52
00:03:59,000 --> 00:04:02,000
Almenningur kaus að taka mynd af þessu fyrirbæri með VLT

53
00:04:02,000 --> 00:04:05,000
í samkeppni sem haldin var til að fagna 50 ára afmæli ESO.

54
00:04:06,000 --> 00:04:09,000
Deyjandi stjarna varpar ytri hlutum lofthjúpsins út í geiminn

55
00:04:09,000 --> 00:04:12,000
áður en ævi hennar er á enda.

56
00:04:13,000 --> 00:04:16,000
Svörtu klessurnar fyrir framan þennan bleikglóandi gasbakgrunn eru kallaðar Bok-hnoðrar.

57
00:04:16,000 --> 00:04:18,000
Öflug geislun frá heitum ungum stjörnum í kring mótar þá.

58
00:04:18,000 --> 00:04:22,000
Til hamingju með 15 ára afmælið VLT!

59
00:04:22,000 --> 00:04:25,000
ESOcast er framleitt af ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

60
00:04:25,000 --> 00:04:28,000
ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli, eru fremstu fjölþjóðlegu stjarnvísindasamtök heims,

61
00:04:28,000 --> 00:04:31,000
sem hanna, smíða og starfrækja þróuðustu stjörnusjónauka veraldar.

