﻿1
00:00:05,000 --> 00:00:14,000
ALMA

2
00:00:15,000 --> 00:00:26,000
Í leit að uppruna okkar í alheiminum

3
00:00:36,500 --> 00:00:42,000
Hátt á hinni afskekktu Chajnantor hásléttu í Andesfjöllum Chile.

4
00:00:43,000 --> 00:00:45,000
Einu harðneskjulegasta umhverfi á Jörðinni.

5
00:00:45,500 --> 00:00:47,040
Innan um eldfjöll ...

6
00:00:47,459 --> 00:00:49,000
eyðimerkursléttur ...

7
00:00:49,200 --> 00:00:50,690
og napra vinda ...

8
00:00:51,000 --> 00:00:57,300
er ALMA — Atacama Large Millimeter/submillimeter Array — tilbúin.

9
00:01:07,000 --> 00:01:10,500
Stjörnufræðingar og vísindamenn frá öllum heimshornum

10
00:01:10,500 --> 00:01:15,000
hafa beðið í ofvæni eftir þessari stund í áratugi.

11
00:01:15,190 --> 00:01:19,430
ALMA er stærsta stjarnvísindaverkefni heims.

12
00:01:19,430 --> 00:01:22,620
En þetta er enginn venjulegur sjónauki.

13
00:01:22,620 --> 00:01:26,640
Í stað þess að safna og greina sýnilegt ljós

14
00:01:26,640 --> 00:01:31,400
skoðar hann gerólíkt og svo til ókannað svið rafsegulrófsins.

15
00:01:40,240 --> 00:01:43,100
Með því að opna nýjan glugga út í alheiminn,

16
00:01:43,500 --> 00:01:50,760
kannar ALMA eitt af síðustu ókönnuðu sviðum stjörnufræðinnar — hinn kalda og fjarlæga alheim.

17
00:01:53,000 --> 00:01:58,950
Allt í leit að svörum við sumum af okkar dýpstu spurningum um uppruna okkar í alheiminum.

18
00:01:58,950 --> 00:02:01,600
Hvernig verða stjörnur og reikistjörnur til?

19
00:02:01,600 --> 00:02:04,490
Hvernig mynduðust fyrstu vetrarbrautirnar?

20
00:02:07,000 --> 00:02:10,979
Chajnantor hásléttan í norðurhluta Chile.

21
00:02:12,000 --> 00:02:17,640
Þrátt fyrir að vera í 5.000 metra hæð yfir sjávarmáli

22
00:02:17,640 --> 00:02:20,220
hefur ALMA blómstrað.

23
00:02:20,220 --> 00:02:23,000
Undanfarin ár

24
00:02:23,000 --> 00:02:27,740
hefur meira en 50 loftnetum við komið fyrir á þessa hálægu eyðimerkursléttu.

25
00:02:29,060 --> 00:02:34,230
ALMA er einstakur risasjónauki, smíðaður í samstarfi

26
00:02:34,230 --> 00:02:39,800
Evrópu, Norður Ameríku og austur Asíu í samvinnu við Chile.

27
00:02:41,320 --> 00:02:46,000
Sextíu og sex hágæða loftnet munu kanna alheiminn

28
00:02:46,000 --> 00:02:49,160
á millímetra og hálfsmillímetra bylgjulengdum

29
00:02:50,500 --> 00:02:54,380
— þúsund sinnum lengri bylgjulengdir en augað nemur.

30
00:02:55,920 --> 00:02:59,220
Þetta ljós berst okkur frá sumum af köldustu

31
00:02:59,220 --> 00:03:02,780
og fjarlægustu fyrirbærum alheims.

32
00:03:04,160 --> 00:03:06,970
Vatnsgufa í lofthjúpi Jarðar gleypir

33
00:03:06,970 --> 00:03:09,480
þetta daufa hvískur utan úr hinum dulda alheimi,

34
00:03:09,480 --> 00:03:15,500
svo til að safna því verðum við að fara á mjög háan og þurran stað

35
00:03:15,500 --> 00:03:18,680
— eins og Chajnantor.

36
00:03:24,610 --> 00:03:26,270
ALMA verður til

37
00:03:26,720 --> 00:03:30,550
Uppruna ALMA verkefnisins má rekja áratugi aftur í tímann.

38
00:03:31,000 --> 00:03:35,090
Vísindamenn frá Evrópu, Norður Ameríku og austur Asíu

39
00:03:35,090 --> 00:03:39,490
þróuðu þrjár mismunandi hugmyndir um nýja, stóra sjónauka

40
00:03:39,490 --> 00:03:42,920
fyrir millímetra- og hálfsmillímetra mælingar.

41
00:03:43,670 --> 00:03:47,680
Að lokum urðu þessar hugmyndir að einni.

42
00:03:48,760 --> 00:03:53,080
Stór vísindaverkefni krefjast hnattræns samstarfs.

43
00:03:53,080 --> 00:03:57,920
Saman geta þjóðirnar afrekað það sem þær gætu ekki einar.

44
00:03:59,360 --> 00:04:03,960
Heildin er betri en summa hlutanna.

45
00:04:04,290 --> 00:04:08,110
ALMA verkefnið varð til!

46
00:04:11,000 --> 00:04:14,760
Að finna réttan stað

47
00:04:20,279 --> 00:04:22,940
Finna þurfti heimili fyrir þennan nýja sjónauka

48
00:04:22,940 --> 00:04:26,520
og augu manna beindust að Chajnantor.

49
00:04:26,870 --> 00:04:31,600
Allir þættir staðarins, allt frá stjarnfræðilegum til veðurfræðilegra,

50
00:04:31,600 --> 00:04:35,720
voru kannaðir ítarlega og daglegar mælingar á lofthjúpnum gerðar.

51
00:04:35,840 --> 00:04:42,440
Niðurstaðan: Chajnantor var fullkominn staður fyrir ALMA.

52
00:04:46,640 --> 00:04:50,300
Brautin rudd

53
00:04:51,500 --> 00:04:55,910
Smíði hófst árið 2003 þegar brautin var rudd

54
00:04:55,910 --> 00:04:58,770
að starfsstöð ALMA.

55
00:05:06,920 --> 00:05:11,670
Hér í 5.000 metra hæð yfir sjávarmáli eru aðstæður

56
00:05:11,670 --> 00:05:14,620
harðneskjulegar og mjög krefjandi.

57
00:05:16,860 --> 00:05:19,400
Sterkir vindar.

58
00:05:20,420 --> 00:05:22,880
Lágur lofthiti.

59
00:05:23,680 --> 00:05:26,540
Mikil útfjólublá geislun.

60
00:05:27,040 --> 00:05:30,080
Og loftið örþunnt.

61
00:05:30,680 --> 00:05:35,290
Svo þunnt að starfsfólkið hér þurfti aukasúrefni

62
00:05:35,290 --> 00:05:38,760
og ganga í gegnum strangar læknisskoðanir.

63
00:05:41,880 --> 00:05:46,460
Tækin smíðuð

64
00:05:48,360 --> 00:05:51,440
Framleiðslu á loftnetum ALMA var deilt

65
00:05:51,440 --> 00:05:53,680
á milli hinna þriggja aðstandenda ALMA.

66
00:05:55,140 --> 00:05:59,540
Þrjár frumgerðir voru prófaðar á prófunarstað ALMA

67
00:05:59,540 --> 00:06:03,440
hjá Very Large Array í Bandaríkjunum.

68
00:06:05,030 --> 00:06:10,900
Loftnetin 66 á hásléttunni eru ómissandi hlutar af ALMA.

69
00:06:12,240 --> 00:06:17,410
Loftnetin safna daufu millímetra geisluninni utan úr geimnum.

70
00:06:17,480 --> 00:06:21,070
Þetta eru fyrsta flokks loftnet.

71
00:06:22,740 --> 00:06:28,400
Ójöfnur á yfirborðum þeirra eru minni en sem nemur þykkt pappírsarkar.

72
00:06:30,170 --> 00:06:37,360
Þau er hægt að hreyfa nógu nákvæmlega til að nema golfkúlu í 15 kílómetra fjarlægð.

73
00:06:39,760 --> 00:06:45,320
Og þau þurfa að standast náttúruöflin á Chajnantor!

74
00:06:58,470 --> 00:07:03,700
Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli lagði til tuttugu og fimm loftnet

75
00:07:04,150 --> 00:07:08,220
National Radio Astronomy Observatory í Bandaríkjunum önnur 25

76
00:07:08,220 --> 00:07:13,800
og 16 komu frá National Astronomical Observatory of Japan.

77
00:07:20,520 --> 00:07:22,620
Viðleitnin var sannarlega hnattræn

78
00:07:22,620 --> 00:07:27,700
því mismunandi hlutar loftnetanna voru smíðaðir á nokkrum stöðum í heiminum,

79
00:07:27,700 --> 00:07:30,700
send til Chile til samsetningar

80
00:07:44,360 --> 00:07:47,780
og síðan prófuð í þjónustumiðstöðinni

81
00:07:47,780 --> 00:07:51,600
þar sem þau voru búin undir fyrstu mælingar á himinhvolfinu.

82
00:07:55,790 --> 00:07:58,420
Fyrstu loftnetin tengd saman

83
00:07:59,950 --> 00:08:04,930
Fyrsta loftnet ALMA var samþykkt og skömmu síðar

84
00:08:04,930 --> 00:08:08,750
tókst að tengja tvö loftnet saman.

85
00:08:12,120 --> 00:08:16,410
Nemar í hverju loftneti skrásetja fínustu blæbrigði

86
00:08:16,410 --> 00:08:19,710
daufu merkjanna sem loftnetin safna.

87
00:08:21,600 --> 00:08:25,040
Nemarnir eru þeir næmustu sinnar tegundar

88
00:08:25,040 --> 00:08:27,520
og eru kældir með helíumgasi

89
00:08:27,520 --> 00:08:31,280
niður í aðeins fjórar gráður yfir alkul.

90
00:08:34,890 --> 00:08:37,100
Nýjum hæðum náð

91
00:08:41,470 --> 00:08:44,750
Fyrstu tilbúnu loftnetin eru á leið

92
00:08:44,750 --> 00:08:46,840
upp í stjórnstöð raðarinnar.

93
00:08:48,160 --> 00:08:52,500
Tveir sérsmíðaðir flutningabílar — Otto og Lore —

94
00:08:52,500 --> 00:08:55,740
flytja 100 tonna loftnetin til og frá.

95
00:08:56,440 --> 00:08:59,580
Otto ekur varfærnislega upp hlykkjóttan veginn

96
00:08:59,580 --> 00:09:02,210
og flytur hátækniloftnetið upp

97
00:09:02,210 --> 00:09:05,000
á hásléttuna.

98
00:09:06,260 --> 00:09:10,400
Í kjölfar þessa fyrsta loftnetsins komu fljótlega mörg önnur.

99
00:09:14,220 --> 00:09:16,340
Að standast væntingar

100
00:09:18,240 --> 00:09:21,550
Fyrstu athuganirnar með tveimur og síðan þremur

101
00:09:21,550 --> 00:09:23,900
loftnetum í einu voru gerðar.

102
00:09:24,950 --> 00:09:27,480
Þetta var lykilpróf fyrir ALMA röðina.

103
00:09:28,580 --> 00:09:31,400
Og öll stóðust það með glæsibrag!

104
00:09:35,230 --> 00:09:38,030
Millímetra og hálfsmillímetra bylgjulengdir

105
00:09:38,030 --> 00:09:41,750
gefa stjörnufræðingum einstaka sýn á alheiminn.

106
00:09:42,540 --> 00:09:45,780
En til að fá þá skerpu sem stjörnufræðingar krefjast,

107
00:09:45,780 --> 00:09:48,890
þyrfti stakur sjónauki að vera

108
00:09:48,890 --> 00:09:52,890
nokkrir kílómetrar í þvermál og ógjörlegt að smíða!

109
00:09:53,200 --> 00:09:57,250
Þess í stað notar ALMA 66 aðskilin loftnet

110
00:09:57,250 --> 00:09:59,720
sem hægt er að dreifa yfir sléttuna

111
00:09:59,720 --> 00:10:03,700
með allt að 16 kílómetra hámarksbili.

112
00:10:04,520 --> 00:10:08,210
Loftnetin eru tengd saman og merkin sem þau nema sameinuð.

113
00:10:08,510 --> 00:10:13,960
Afraksturinn er einn risasjónauki, jafnstór röðinni allri,

114
00:10:13,960 --> 00:10:19,500
með meiri næmni og upplausn en áður hefur þekkst.

115
00:10:24,200 --> 00:10:27,080
Að skilja þessi samtvinnuðu merki

116
00:10:27,080 --> 00:10:31,440
krefst hjálpar hálægustu ofurtölvu heims.

117
00:10:32,180 --> 00:10:35,040
Með 134 milljónir örgjörva

118
00:10:35,040 --> 00:10:39,400
sem gera 17 billjarða útreikninga á sekúndu

119
00:10:39,400 --> 00:10:42,860
— jafn marga og öflugasta ofurtölva í heiminum —

120
00:10:42,920 --> 00:10:45,840
sameinar ALMA ofurtölvan á Chajnantor

121
00:10:45,840 --> 00:10:50,150
og ber saman merkin frá öllum loftnetunum.

122
00:10:56,430 --> 00:11:00,110
Þegar sífellt fleiri loftnet bætast við á Chajnantor,

123
00:11:00,110 --> 00:11:05,270
tekur þjónustumiðstöðin, stjórnstöð stjörnustöðvarinnar,

124
00:11:05,270 --> 00:11:11,840
á sig mynd í aðeins þægilegri hæð eða 2.900 metra yfir sjávarmáli.

125
00:11:13,000 --> 00:11:15,960
Staðurinn er iðandi af fólki allan sólarhringinn

126
00:11:15,960 --> 00:11:18,260
sem stjórnar sjónaukanum,

127
00:11:18,260 --> 00:11:22,430
sér um prófanir og viðhald á loftnetum og öðrum búnaði.

128
00:11:23,590 --> 00:11:25,880
Og er híbýli starfsfólks ALMA

129
00:11:25,880 --> 00:11:29,550
á dag- og næturvöktum í stjörnustöðinni.

130
00:11:39,230 --> 00:11:41,670
Skrifstofurnar í Santiago

131
00:11:44,040 --> 00:11:46,840
Í Santiago, höfuðborg gestaþjóðarinnar Chile

132
00:11:46,840 --> 00:11:50,760
voru byggðar aðalskrifstofur ALMA.

133
00:11:53,470 --> 00:11:57,200
Hér starfa tæknimenn, vísindamenn og stjórnendur

134
00:11:57,200 --> 00:12:00,450
sameiginlegrar skrifstofu ALMA.

135
00:12:09,670 --> 00:12:11,560
Sýnt fram á yfirburði

136
00:12:14,320 --> 00:12:17,280
Áður en smíði sjónaukans lauk

137
00:12:17,280 --> 00:12:20,630
hófust fyrstu mælingar

138
00:12:20,630 --> 00:12:23,120
með hluta loftnetanna.

139
00:12:24,480 --> 00:12:27,400
ALMA hafði opnað augun!

140
00:12:33,430 --> 00:12:36,220
Mörg þúsund vísindamenn, hvaðanæva að úr heiminum,

141
00:12:36,220 --> 00:12:41,200
kepptust um að vera á meðal fárra útvalinna sem fengju að nota sjónaukann fyrst.

142
00:12:43,560 --> 00:12:46,230
Þótt loftnetin væru að 16 talsins

143
00:12:46,230 --> 00:12:51,000
var ALMA þegar orðinn öflugasti sjónauki sinnar tegundar.

144
00:12:57,610 --> 00:13:02,240
Fyrstu mælingar uppfylltu vonir og væntingar allra.

145
00:13:06,120 --> 00:13:08,020
Loftnetsvetrarbrautirnar,

146
00:13:08,020 --> 00:13:12,550
tvær mjög bjagaðar vetrarbrautir að rekast saman.

147
00:13:13,640 --> 00:13:17,070
Í sýnilegu ljósi sjáum við stjörnurnar í vetrarbrautunum

148
00:13:17,070 --> 00:13:21,600
en ALMA sýnir köldu, þéttu gasskýin

149
00:13:21,600 --> 00:13:24,660
sem nýjar stjörnur myndast úr.

150
00:13:30,320 --> 00:13:35,430
Hjarta vetrarbrautarinnar Centaurus A.

151
00:13:35,430 --> 00:13:41,040
ALMA skyggnist í gegnum ógegnsæjar rykslæður sem hylja miðjuna.

152
00:13:45,960 --> 00:13:50,460
Mynd af nálægri stjörnu, Fomalhaut, veitir vísbendingar

153
00:13:50,460 --> 00:13:53,880
um myndun og þróun sólkerfa.

154
00:13:57,400 --> 00:14:01,610
Geimryk sem fannst umhverfis brúnan dverg

155
00:14:01,610 --> 00:14:03,450
bendir til þess að bergreikistjörnur

156
00:14:03,450 --> 00:14:07,220
gætu jafnvel verið mun algengari í alheiminum en við töldum.

157
00:14:11,180 --> 00:14:14,320
Sykursameindir fundust í kringum unga

158
00:14:14,320 --> 00:14:16,790
stjörnu á borð við sólina í fyrsta sinn:

159
00:14:16,790 --> 00:14:20,720
Byggingareiningar lífs á réttum stað, á réttum tíma

160
00:14:20,720 --> 00:14:24,800
til að vera hlutar af nýjum reikistjörnum í mótun umhverfis stjörnuna.

161
00:14:29,330 --> 00:14:35,780
Óvænt þyrilbygging í efninu í kringum öldnu stjörnuna R Sculptoris

162
00:14:35,780 --> 00:14:39,480
opinberar leyndardóma deyjandi stjörnu.

163
00:14:44,740 --> 00:14:46,950
Miklir straumar úr gasi

164
00:14:46,950 --> 00:14:48,480
flæða yfir geil

165
00:14:48,480 --> 00:14:52,140
í efnisskífunni í kringum unga stjörnu.

166
00:14:52,140 --> 00:14:55,200
Lykilstig í myndun risareikistjarna

167
00:14:55,200 --> 00:14:58,120
séð í fyrsta sinn.

168
00:14:58,120 --> 00:15:02,800
Og allt þetta áður en röðin var fullkláruð!

169
00:15:05,240 --> 00:15:07,520
Í átt að nýjum sjóndeildarhring

170
00:15:10,270 --> 00:15:13,830
Vígsla ALMA markar tilkomu sjónaukans.

171
00:15:13,830 --> 00:15:16,340
Ferðin hefur verið löng.

172
00:15:16,340 --> 00:15:18,670
ALMA hefur vaxið úr hugmynd

173
00:15:18,670 --> 00:15:20,520
í verkefni í smíðum

174
00:15:20,520 --> 00:15:22,960
yfir í fullstarfhæfa stjörnustöð

175
00:15:22,960 --> 00:15:27,600
og sannarlega í hnattrænt vísindasamstarf.

176
00:15:36,750 --> 00:15:40,730
Í kyrrlátri en afskekktri fegurð Atacamaeyðimerkurinnar í Chile

177
00:15:40,730 --> 00:15:43,220
er ALMA tiilbúin fyrir framtíðina.

178
00:15:43,830 --> 00:15:46,440
Með þessum stórkostlega sjónauka

179
00:15:46,440 --> 00:15:49,440
munu stjörnufræðingar um allan heim skyggnast dýpra

180
00:15:49,440 --> 00:15:52,600
inn í falda leyndardóma alheimsins.

181
00:15:53,040 --> 00:15:58,160
Í leit að uppruna okkar í alheiminum!

182
00:16:03,680 --> 00:16:09,720
ALMA

183
00:16:18,240 --> 00:16:22,840
Til allra þeirra sem drifnir eru áfram af forvitninni til að spyrja stærstu spurninganna.

184
00:16:23,480 --> 00:16:28,930
Handrit: ESO; þýðing: Sævar Helgi Bragason

