﻿1
00:00:03,000 --> 00:00:07,000
Ein öflugasta ofurtölva heims

2
00:00:07,000 --> 00:00:11,000
hefur verið sett upp og prófuð

3
00:00:11,000 --> 00:00:14,000
á afskekktum stað, hátt yfir sjávarmáli

4
00:00:14,000 --> 00:00:16,000
í Andesfjöllunum í norðurhluta Chile.

5
00:00:17,000 --> 00:00:21,000
Uppsetningin er mikilvægur áfangi í átt til þes

6
00:00:21,000 --> 00:00:23,000
að ljúka smíði ALMA,

7
00:00:23,000 --> 00:00:28,000
Atacama Large Millimeter/submillimeter Array.

8
00:00:29,000 --> 00:00:32,000
ALMA ofurtölvan breytir loftnetum

9
00:00:32,000 --> 00:00:37,000
ALMA í einn risasjónauka.

10
00:00:42,000 --> 00:00:44,000
Þetta er ESOcast!

11
00:00:44,000 --> 00:00:48,000
Vísindi í fremstu röð og lífið á bak við tjöldin

12
00:00:48,000 --> 00:00:52,000
hjá ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.

13
00:01:01,000 --> 00:01:06,000
ALMA er ein flóknasta stjörnustöð heims frá upphafi

14
00:01:06,000 --> 00:01:11,000
og samanstendur af röð 66 loftneta.

15
00:01:12,000 --> 00:01:15,000
Ofurtölva sjónaukans, eða fylgnisían,

16
00:01:15,000 --> 00:01:18,000
er mjög mikilvægur hluti hans.

17
00:01:19,000 --> 00:01:22,000
Til að ALMA virki, verður að sameina

18
00:01:22,000 --> 00:01:26,000
merkin sem hvert loftnet nemur utan úr geimnum

19
00:01:26,000 --> 00:01:28,000
við merki allra hinna loftnetanna.

20
00:01:30,000 --> 00:01:34,000
Ofurtölvan sameinar að lokum og ber stöðugt saman

21
00:01:34,000 --> 00:01:38,000
gögn frá allt að 64 af loftnetum ALMA raðarinnar,

22
00:01:38,000 --> 00:01:42,000
sem allt að 16 kílómetra skilja í sundur,

23
00:01:42,000 --> 00:01:46,000
og gerir loftnetunum kleift að vinna saman

24
00:01:46,000 --> 00:01:49,000
sem einn risavaxinn sjónauki.

25
00:01:50,000 --> 00:01:53,000
ALMA ofurtölvan hefur meira en

26
00:01:53,000 --> 00:01:59,000
134 milljónir örgjörva og gerir, þótt ótrúlegt megi virðar,

27
00:01:59,000 --> 00:02:03,000
17 billjarða útreikninga á sekúndu.

28
00:02:03,000 --> 00:02:08,000
Það er 17 þúsund milljón milljón!

29
00:02:10,000 --> 00:02:14,000
Tölvan var smíðuð sérstaklega til þessa verks

30
00:02:14,000 --> 00:02:18,000
en fjöldi útreikninga á sekúndu er sambærilegur við

31
00:02:18,000 --> 00:02:21,000
getu hröðustu almennu

32
00:02:21,000 --> 00:02:24,000
ofurtölva í heiminum.

33
00:02:25,000 --> 00:02:29,000
Þessi einstaka reiknigeta krafðist frumlegrar hönnunar,

34
00:02:29,000 --> 00:02:33,000
bæði fyrir staka hluta og heildaruppbyggingu

35
00:02:33,000 --> 00:02:36,000
ofurtölvunnar.

36
00:02:38,000 --> 00:02:41,000
Upphafleg hönnun tölvunnar,

37
00:02:41,000 --> 00:02:44,000
sem og smíði hennar og uppsetning,

38
00:02:44,000 --> 00:02:48,000
var í höndun National Radio Astronomy Observatory í Bandaríkjunum,

39
00:02:48,000 --> 00:02:52,000
norður-ameríska þátttakandans í ALMA.

40
00:02:53,000 --> 00:02:57,000
National Science Foundation í Bandaríkjunum fjármagnaði ofurtölvuna

41
00:02:57,000 --> 00:03:01,000
auk þess sem ESO lagði sín lóð á vogarskálarnar.

42
00:03:01,000 --> 00:03:05,000
ESO, sem evrópski þátttakandinn í ALMA,

43
00:03:05,000 --> 00:03:08,000
lagði einnig til lykilhluti í tölvuna:

44
00:03:08,000 --> 00:03:13,000
Glænýtt og fjölhæft stafrænt síukerfi,

45
00:03:13,000 --> 00:03:15,000
sem fundið var upp og búið til í Evrópu,

46
00:03:15,000 --> 00:03:20,000
var sett inn í upphaflegu hönnun NRAO.

47
00:03:22,000 --> 00:03:26,000
Bordeauxháskóli hannaði og smíðaði kerfi

48
00:03:26,000 --> 00:03:32,000
550 fyrsta flokks stafrænna rafrásarsía fyrir ESO.

49
00:03:32,000 --> 00:03:36,000
Með þessum síum er hægt að kljúfa ljósið

50
00:03:36,000 --> 00:03:39,000
sem ALMA sér í 32 sinnum fleiri tíðnisvið

51
00:03:39,000 --> 00:03:42,000
en í upprunalegu hönnuninni,

52
00:03:42,000 --> 00:03:48,000
sem gerir stjörnufræðingum kleift að grannskoða litróf ljóssins.

53
00:03:50,000 --> 00:03:55,000
Fyrir utan tæknilegar áskoranir við smíði tölvunnar

54
00:03:55,000 --> 00:04:00,000
var harðneskjuleg staðsetning kerfisins önnur hindrun.

55
00:04:01,000 --> 00:04:03,000
Ofurtölvan er hýst í tæknibyggingu

56
00:04:03,000 --> 00:04:06,000
stjórnstöðvar ALMA,

57
00:04:06,000 --> 00:04:10,000
hálægustu hátæknibyggingu heims.

58
00:04:11,000 --> 00:04:16,000
Í 5.000 metra hæð er loftið þunnt sem þýðir

59
00:04:16,000 --> 00:04:21,000
að tvöfalt meira loftflæði en venjulega þarf til að kæla ofurtölvuna.

60
00:04:23,000 --> 00:04:28,000
Þunna loftið útilokar líka notkun diskadrifa sem snúast,

61
00:04:28,000 --> 00:04:31,000
því höfuð skrifarans og lesarans krefst

62
00:04:31,000 --> 00:04:36,000
loftpúða til að koma í veg fyrir að þeir rekist á plöturnar.

63
00:04:36,000 --> 00:04:40,000
Það sem meira er þarf ofurtölvan að standast jarðskjálfta

64
00:04:40,000 --> 00:04:44,000
sem eru algengir á þessu svæði.

65
00:04:46,000 --> 00:04:49,000
ALMA hóf rannsóknir árið 2011

66
00:04:49,000 --> 00:04:52,000
með hluta loftnetanna.

67
00:04:53,000 --> 00:04:56,000
Hluti ofurtölvunnar var þá þegar í notkun

68
00:04:56,000 --> 00:04:59,000
og sameinaði merkin frá þessum loftnetum

69
00:04:59,000 --> 00:05:02,000
en kerfið er nú tilbúið

70
00:05:02,000 --> 00:05:08,000
til þess að ALMA hefji rannsóknir með fleiri loftnetum.

71
00:05:12,000 --> 00:05:15,000
Velheppnuð uppsetning nýju ofurtölvunnar

72
00:05:15,000 --> 00:05:21,000
er mikilvægt skref í átt til þess að ljúka smíði ALMA í nátinni framtíð.

73
00:05:23,000 --> 00:05:27,000
Með óviðjafnanlegri greinigetu raðarinnar

74
00:05:27,000 --> 00:05:34,000
munu stjörnufræðingar öðlast nýja innsýn í hulin undur alheimsins.

75
00:05:41,000 --> 00:05:45,000
ESOcast er framleitt af ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli www.eso.org

76
00:05:45,000 --> 00:05:49,000
ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli, eru fremstu fjölþjóðlegu vísinda- og tæknisamtök í stjörnufræði

77
00:05:49,000 --> 00:05:52,000
sem hannar, smíðar og starfrækir öflugustu stjörnusjónauka heims.

78
00:05:55,000 --> 00:05:59,000
Handrit ESO; þýðing: Sævar Helgi Bragason

