﻿1
00:00:07,500 --> 00:00:12,000
Ekki er langt síðan talið var til vísindaskáldsagna að fylgjast með efni

2
00:00:12,000 --> 00:00:16,000
tætast í sundur er það félli í átt að risasvartholi.

3
00:00:16,000 --> 00:00:22,000
En sú er raunin hjá stjörnufræðingum sem notað hafa Very Large Telescope ESO.

4
00:00:26,000 --> 00:00:28,000
Þetta er ESOcast!

5
00:00:28,000 --> 00:00:31,000
Vísindi í fremstu röð og lífið á bakvið tjöldin hjá ESO

6
00:00:31,000 --> 00:00:34,000
European Southern Observatory.

7
00:00:45,000 --> 00:00:48,000
Komið þið sæl og velkomin í ESOcast.

8
00:00:48,000 --> 00:00:52,500
Í þessum þætti sjáum við hvernig vísindaskáldskapur hefur orðið að vísindalegri staðreynd

9
00:00:52,500 --> 00:00:56,500
þegar stjörnufræðingar fylgjast með risasvartholi

10
00:00:56,500 --> 00:01:00,000
tæta smám saman í sig gasský.

11
00:01:02,000 --> 00:01:05,500
Í 20 ára hafa sjónaukar ESO verið notaðir til að fylgjast með hreyfingum stjarna

12
00:01:05,500 --> 00:01:10,000
í kringum risasvartholið í miðju Vetrarbrautarinnar.

13
00:01:11,000 --> 00:01:15,000
Þetta svarthol er fjórum milljón sinnum massameira en sólin

14
00:01:15,000 --> 00:01:19,000
og telst þess vegna risasvarthol.

15
00:01:20,000 --> 00:01:21,000
Þótt svartholið sé gríðarþungt

16
00:01:21,000 --> 00:01:26,000
er fremur lítið af efni í kringum það sem skín ekki skært

17
00:01:26,000 --> 00:01:29,000
en það er um það bil að breytast.

18
00:01:32,000 --> 00:01:34,500
Með hjálp Very Large Telescope ESO

19
00:01:34,500 --> 00:01:37,000
hafa stjörnufræðingar fundið nýtt fyrirbæri

20
00:01:37,000 --> 00:01:42,000
sem stefnir á ógnarhraða í átt að svartholinu.

21
00:01:42,000 --> 00:01:46,000
Fyrirbærið er ekki stjarna heldur gasský.

22
00:01:47,000 --> 00:01:50,000
Skýið er aðallega úr vetnisgasi

23
00:01:50,000 --> 00:01:53,500
sem við sjáum út um allt í hjarta Vetrarbrautarinnar.

24
00:01:53,500 --> 00:01:57,000
Þetta tiltekna ský er hér um bil þrisvar sinnum massameira en jörðin.

25
00:01:57,000 --> 00:02:00,000
Það er því fremur lítið

26
00:02:00,000 --> 00:02:06,000
en skín skært vegna ljóss frá stjörnum í kring.

27
00:02:08,000 --> 00:02:09,000
Að stjörnufræðingunum ásjáandi

28
00:02:09,000 --> 00:02:14,000
hefur skýið aukið hraða sinn þegar það nálgast svartholið.

29
00:02:14,000 --> 00:02:17,000
Hraði þess hefur tvöfaldast á síðustu sjö árum

30
00:02:17,000 --> 00:02:23,000
og geysist það nú að svartholinu á meira en 8 milljón km hraða á klukkustund.

31
00:02:24,000 --> 00:02:28,000
Á síðustu árum hafa stjörnufræðingar séð ystu brúnir skýsins

32
00:02:28,000 --> 00:02:33,000
verða sífellt tættari á sama tíma og skýið nálgast svartholið.

33
00:02:33,000 --> 00:02:37,000
En hápunkturinn er framundan.

34
00:02:38,000 --> 00:02:40,000
Þyngdartog svartholsins er slíkt

35
00:02:40,000 --> 00:02:42,000
að þegar skýið fellur í átt til þess

36
00:02:42,000 --> 00:02:46,000
togast það og teygist

37
00:02:46,000 --> 00:02:48,000
og verður að lokum eins og spaghettí.

38
00:02:48,000 --> 00:02:51,000
Það verður ílangt og fellur inn í svartholið.

39
00:02:52,000 --> 00:02:55,500
Næstu ár verða merkileg og spennandi

40
00:02:55,500 --> 00:02:57,000
því við munum fylgjast náið með svæðinu.

41
00:02:57,000 --> 00:02:59,000
Hér nálgast skýið og byrjar að leysast upp

42
00:02:59,000 --> 00:03:05,000
en nú byrjar það að víxlverka við heita gasið í kringum svartholið.

43
00:03:05,000 --> 00:03:06,000
Þetta höfum við aldrei séð áður.

44
00:03:09,000 --> 00:03:11,000
Enginn veit hvað gerist næst.

45
00:03:11,000 --> 00:03:13,000
Líklega mun skýið hitna

46
00:03:13,000 --> 00:03:17,000
og taka að gefa frá sér orkuríka röntgengeisla er það sundrast.

47
00:03:17,000 --> 00:03:22,000
Að lokum mun efnið hverfa með því að falla inn í svartholið.

48
00:03:22,000 --> 00:03:24,000
Í huga stjörnufræðinganna

49
00:03:24,000 --> 00:03:29,000
er þetta einstakt tækifæri til að kanna heita gasið í kringum svartholið.

50
00:03:39,000 --> 00:03:43,000
Við vitum ekki hvernig efni fellur inn í svartholið

51
00:03:43,000 --> 00:03:44,000
og skiljum það ekki í neinum smáatriðum.

52
00:03:44,000 --> 00:03:48,000
En hér í miðju vetrarbrautarinnar höfum við tækifæri ef svo má segja,

53
00:03:48,000 --> 00:03:50,500
til að rannsaka þetta ferli náið.

54
00:03:50,500 --> 00:03:54,500
Hvernig efnið bætist við svartholið og hvaða ferli eru ráðandi,

55
00:03:54,500 --> 00:03:57,500
hvernig efnin víxlverka á þessu miðsvæði.

56
00:03:57,500 --> 00:03:59,500
Þetta er frábært tækifæri.

57
00:04:03,000 --> 00:04:07,500
Þetta er gott dæmi um það þegar skáldskapur verður að vísindalegri staðreynd.

58
00:04:18,000 --> 00:04:21,000
ESOcast er framleitt af ESO, European Southern Observatory.

59
00:04:21,500 --> 00:04:23,500
ESO, European Southern Observatory,

60
00:04:23,500 --> 00:04:26,000
eru fremstu fjölþjóðlegu stjarnvísindasamtök heims

61
00:04:26,000 --> 00:04:29,000
sem hannar, smíðar og starfrækir öflugustu stjörnustöðvar heims.

62
00:04:30,000 --> 00:04:35,000
Handrit: ESO; þýðing: Sævar Helgi Bragason

63
00:04:47,000 --> 00:04:50,000
Nú þegar þú hefur fylgst með því nýjasta frá ESO

64
00:04:52,000 --> 00:04:55,000
skaltu hverfa út í geim með Hubble.

65
00:04:58,000 --> 00:05:01,000
Í Hubblecast er fjallað um nýjustu uppgötvanir

66
00:05:01,000 --> 00:05:04,000
frægasta geimsjónauka heims,

67
00:05:07,000 --> 00:05:10,000
Hubble geimsjónauka NASA og ESA.

